leita

  
 
01. október 2012| Djúpið

13. september 2012| Frost

13. ágúst 2012| To Rome with Love


 

Prometheus

Ridley Scott leikstýrði tveimur af áhrifamestu og bestu vísindaskáldsögukvikmyndum allra tíma, Alien og Blade Runner á árunum 1979-1982 og voru þær önnur og þriðja kvikmynd hans. Scott hefur leikstýrt sautján kvikmyndum síðan, nokkrum frábærum, en ekki farið inn á slóðir Alien og Blade Runner. Það þótti því mikil tíðindi í kvikmyndaheiminum þegar Ridley Scott tilkynnti um Prometheus.

prometheus

4star

Sögusagninar sem tóku flugið fóru strax á kreik og voru Blade Runner og Alien tvinnaðar í þær sögusagnir, aðallega þó Alien. En eins og fljótt kom í ljós þá er Prometheus sjálfstæð framtíðarkvikmynd sem sækir þó einstaka hugmyndir í Alien. Heimspressan beið spennt enda lítið látið uppi um efni myndarinnar og ekki síður spenntir voru fjölmargir aðdáendur Scotts, ekki síst aðdáendur hér á landi þar sem hluti af upptökum fór fram og hefur vandlega verið fylgst með gerð myndarinnar í íslenskum fjölmiðlum.

Eins og oft vill verða þegar væntingar eru þá miklar þá verða vonbrigðin kannski meiri en ástæða er til. Prometheus er engin Blade Runner eða Alien, en stendur vel fyrir sínu og er mun betri en flestar kvikmyndir af sama toga sem litið hafa dagsins ljós á síðustu árum. Myndin er mikið og forvitnilegt sjónarspil þó vissulega vanti djúpt bitastætt handrit. Vel er þó hægt að líta framhjá göllum í handritum þegar tækniliðinu tekst best upp í ótrúlega flottum atriðum.

Í stuttu máli gerist Prometheus í lok 21. aldarinnar og segir frá tveimur vísindamönnum sem telja sig hafa fundið vísbendingar um upphaf mannkyns. Í kjölfarið er fjármagnaður tveggja ára leiðangur til að fara á tiltekinn stað í fjærsta hluta alheimsins þar sem færa á sönnur hvernig mannkynið varð til. Þegar komið er á leiðarenda bíða margar furðulegar vísbendingar sem bæði afvegaleiða og leiða hópinn að þeim fjarlæga möguleika að geta sagt til um hver skapaði mannkynið, auk þess sem leiðangurinn er ekki velkominn og lendir oftar en ekki í hremmingum við áður óþekktar verur.

Nú er það svo að þegar söguþráðurinn er skoðaður þá gefur hann tilefni til að skrifa innihaldsríkt handrit sem hefði sjálfsagt ekki gert neitt annað en að gera Prometheus að enn betri kvikmynd. Um leið hefði myndin orðið öðruvísi á kostnað átakaatriða og mikilfenglegrar sviðsetningar sem manni grunar að stundum sé gert til að fá myndina til að líta betur út í þrívídd, sem allt gengur út á í dag í gerð stórmynda og er því óhætt að taka undir þá gömlu og sígildu klisju að sjón er sögu ríkari þegar Prometheus á í hlut.

Hvað um það, Prometheus stendur vel fyrir sínu og er áhrifamikil kvikmynd sem heldur áhorfandanum við efnið þó laust sé í reipum og hvenær er ekki spennandi að sjá kvikmynd sem fjallar um eilífðarspurninguna: „Hvert er og hvar er upphaf mannkyns?“

Leikstjóri: Ridley Scott. Handrit: John Sphaits og Damon Lindelof. Kvikmyndataka: Dariuz Wolski. Tónlist: Marc Streitenfeld. Leikarar: Charlize Theron, Noomi Rapace, Michael Fasbinder, Idris Elba, Guy Pearce og Logan Marshall-Green. 124 mín.

Hilmar Karlsson

Share

   
Leikrit í einum þætti sem endurtekinn er þangað til allir fá leið á honum. Konan situr í lopapeysu við gluggann og horfir út. Eiginmaðurinn horfir í spegil og heldur hægri hendinni við bringspalir. Laumar henni öðru hvoru undir jakkaboðunginn og kinkar ánægður kolli. D: Óli, ég skal flytja


31. maí 2013| Stór Moggi (JGH)

24. maí 2013| Bitur reynsla (JGH)

03. maí 2013| Afsökun (JGH)





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is