leita

  
 
01. október 2012| Djúpið

13. september 2012| Frost

13. ágúst 2012| To Rome with Love


 

Sherlock Holmes: A Game of Shadows

Guy Ritchie tók vissa áhættu þegar hann leikstýrði Sherlock Holmes (2009), ferill hans var á niðurleið og Sherlock Holmes er sögupersóna sem er langt frá þeim lundúnalýð sem Ritchie er hvað þekktastur fyrir að tefla fram í kvikmyndum á borð við Lock, Stock and Two Smoking Barrels og Snatch. Áhættan borgaði sig og Sherlock Holmes fór sigurför um heiminn og naut sín vel nútímalegur stíll Ritchie þrátt fyrir að myndin gerist í kringum aldamótinn 1900.

sherlockholmesii

3star

Guy Ritchie tók vissa áhættu þegar hann leikstýrði Sherlock Holmes (2009), ferill hans var á niðurleið og Sherlock Holmes er sögupersóna sem er langt frá þeim lundúnalýð sem Ritchie er hvað þekktastur fyrir að tefla fram í kvikmyndum á borð við Lock, Stock and Two Smoking Barrels og Snatch. Áhættan borgaði sig og Sherlock Holmes fór sigurför um heiminn og naut sín vel nútímalegur stíll Ritchie þrátt fyrir að myndin gerist í kringum aldamótinn 1900.

Framhaldsmyndin Sherlock Holmes: A Game Of of Shadows er ekki svo ólík fyrri myndinni hvað varðar stílinn en þó má merkja að Ritchie hefur tekið smá hliðarspor og er A Game Of of Shadows meira í líkingu við stórar Hollywood myndir síðari ára þar sem allt er lagt í hraðann og persónur látnar meira afskiptar. Ekki það að Holmes og Watson eru gamaldags löggur sem fá að njóta sín og ef eitthvað er þá hafa Robert Downey jr. og Jude Law þjálfast í hlutverkum sínum og eru beinskeyttari og um leið öruggari, en yfirbragð myndarinnar er aðeins öðruvísi, þó það komi vissulega ekki niður á spennandi atburðarás og ágætum húmor, en eins og í fyrri myndinni var ánægjan í lokin blendin.

Sherlock Holmes: A Game Of of Shadows hefst að því er virðist þar sem fyrri myndinni lauk, en þess má þó geta að handritið er mjög lauslega byggt á fyrstu skáldsögu Arthurs Conan Doyles um Sherlock Holmes. Holmes er kominn á slóð erkióvinar síns, James Moriarty (Jared Harris), sem Holmes grunar um að reyna að stjórna stríðsrekstri í heiminum og vera ábyrgur fyrir hamförum og dauðsföllum sem fylgja í kjölfarið. Þar sem Moriarty er jafn vel af guði gerður og Sherlock Holmes hvað varðar gáfur og útsjónarsemi þá veitir ekki af aðstoð og hana fá þeir félagar Holmes og Watson frá bróður Holmes, Mycroft (Stephen Fry) og dularfullri sígaunakonu, Simza (Noomi Rapace) sem kemur til hjálpar þegar Holmes bjargar henni frá Moriarty. Sagan er í heildina fjölbreytt og skemmtileg og einvígi Holmes og Moriarty sem er meira andlegt en líkamlegt tekur á sig ýmsar myndir.

Hvað varðar útfærslu á sögunni þá er góður stígandi í henni og þó hraðinn sé mikill og nokkur atriði mjög vel gerð þá er varla hægt að segja að um heilsteypta ævintýramynd sé að ræða til þess er ekki nógu mikið jafnvægi milli atriða hvað varðar tímasetningu á þeim. Það sem gerir að áhorfandinn heldur sambandi við fortíðina eru leikaranir sem skapa rétta andrúmsloftið og Jared Harris, Stephen Fry og Noomi Rapace skapa gott mótvægi við Robert Downey jr. og Jude Law og hjálpa til með að gera Sherlock Holmes: A Game of Shadows að ágætri afþreyingu. 
 
Leikstjóri: Guy Ritcie. Handrit: Michele Mulroney og Kieran Mulroney. Kvikmyndataka: Philippe Rousselot. Tónlist: Hans Zimmer. Leikarar: Robert Downey jr., Jude Law, Noomi Rapace, Jared Harris, Stephen Fry og Rachel McAdams. 129 mín.

Hilmar Karlsson

Share

   
24. maí 2013| Bitur reynsla (JGH)
Ég er ánægður með nýja ríkisstjórn og óska henni alls hins besta. Hún á hins vegar mikið verk fyrir höndum, eins og rakið er í ítarlegri úttekt í nýjasta blaði Frjálsrar verslunar. Ný ríkisstjórn tekur langt í frá við góðu búi þótt Jóhanna Sigurðardóttir hafi í sjálfshóli nefnt það



14. desember 2012| Sjálfhverfa kynslóðin






© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is