leita

  
 
12. júlí 2012| Intouchables

12. júní 2012| Prometheus

14. mars 2012| Svartur á leik


 

Svartur á leik

Það virðist vera komin upp sú staða í íslenskri kvikmyndagerð að hreinræktaðar glæpamyndir séu besta fjárfestingin. Við höfum fyrir Reykjavík Rotterdam og Borgríki, sem báðar gengu ágætlega og nú er komin sú þriðja, Svartur á leik sem hefur slegið fyrrnefndar kvikmyndir út í aðsókn og virðist ætla að komast í hóp mest sóttu íslenskra kvikmynda frá upphafi. Það má því búast við að á næstu misserum verði tilkynnt um fyrirhugaðar glæpamyndir og sjálfsagt koma nýjar sjónvarpsseríur í kjölfarið, sem verða örugglega dekkri en þær sem fyrir eru. 

svartur_a_leik

Góðar fréttir eða ekki góðar fréttir, sitt sýnist hverjum. Góðu fréttirnar eru þær að íslensk kvikmyndagerð gæti risið úr öskustónni eina ferðina enn, þar sem komið er í ljós að það getur gefið vel í aðra hönd að framleiða íslenska kvikmynd. Sem betur fer er ekki aðeins Svartur á leik sönnun þess heldur einnig hin margverðlaunaða Eldfjall sem er að öllu leyti ólík kvikmynd.

Hvað sem þessum hugleiðingum líður þá er ljóst að Svartur á leik höfðar til fjöldans þrátt fyrir að fjalla eingöngu um harðsvíraða glæpamenn, sem eru uppfullir af dópi, lemja alla sem ekki eru í náðinni og geta ekki skemmt sér nema kynlífsorgía fylgi með. Ekki vantar hraðann og átökin og ekki hef ég tölu á þeim atriðum þar sem verið er að sjúga upp í nefið. Hver skyldi svo söguþráðurinn vera, jú, miskunnarlaus barátta um yfirráðin á dópsölunni í Reykjavík. Myndin er gerð eftir skáldsögu Stefáns Mána sem byggir sögu sína á raunverulegum atburðum. Og er ekkert verið að fela þá atburði í myndinni, samanber bílveltuna í Hvalfirðinum, ránið í Búnaðarbankanum og hvarf dópistans í Breiðholtinu. Ekki gefa þessi atriði beint sögunni púst en gaman er að velta þeim fyrir sér í samhengi við atburðarásina.

Aðalpersónan er Stebbi sækó, sem fær viðurnefnið frá fornvini sínum Tóta eftir að hafa nánast drepið andstæðing með barsmíðum. Það er síðan Stebba sem fylgt er í gegnum myndina, upphefð hans og fall, nokkuð sem við höfum margoft séð í bandarískum mafíumyndum. Það hefði auðveldlega verið hægt að klúðra sögunni rækilega en leikstjórinn Óskar Þór Axelsson veit nákvæmlega hvaða leið hann á að fara til ná til áhorfenda og nær upp fínni uppbyggingu þar sem hraðinn er mikill og barsmíðar áhrifamiklar. Þá er ekki lítið afrek að hafa fundið réttu leikarana í hlutverkin. Þú næstum trúir því að Stebbi sækó, sem Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikur mjög vel, sé innst inni góður drengur (hringir af og til í mömmu sína) og þú trúir því alveg að Tóti og Brúno séu sadistar sem best er að láta í friði. Damon Younger og Jóhannes Haukur Jóhannesson eru fínir, sérstaklega Jóhannes Haukur sem er stjarna myndarinnar og er Tóti ólíkur öllum þeim persónum því sem þessi ágæti leikari hefur túlkað hingað til.

Í lokin er látið að því liggja að annar tveggja Stebbi sækó og Brúnó láti lífið í uppgjöri á milli þeirra og mér er svo nákvæmlega sama hvor það er sem heldur lífi, sagan hefur ekki haft meiri áhrif á mig en það. En eftir stendur vel gerð glæpamynd, með einhverri bestu kvikmyndatöku og klippingu sem sést hefur og góðri og styrkri leikstjórn.

3star

 

 

 

 

Leikstjóri Óskar Þór Axelsson. Handrit: Óskar Þór Axelsson eftir samnefndri skáldsögu Stefáns Mána. Kvikmyndataka: Bergsteinn Björgúlfsson. Tónlist: Frank Hall. Klipping: Kristján Lodmfjörð. Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Damon Younger & María Birta. 104 mín.
Hilmar Karlsson

Share

   
18. maí 2013| Heim í hádeginu (JGH)
Það hefur verið skrifað svolítið um kviðslit á þessari vefsíðu og að menn hafi farið í aðgerð líkt Gvendur á eyrinni forðum; kviðslitsaðgerð. Þannig vill til að við Benedikt fórum báðir í kviðslitsaðgerð á fyrstu vikum ársins. Enda fór um alla hér í fyrirtækinu sem spurðu í angist sinni



18. janúar 2013| Hægt á trúlofuninni (JGH)






© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is