leita

  
 
03. febrúar 2012| The Artist

30. janúar 2012| The Descendants

20. janúar 2012| My Week With Marilyn


 

The Adjustment Bureau

Ekki hef ég lesið smásögu Philip K. Dick, sem The Adjustment Bureau er lauslega byggð á, en bjóst við, þegar miðað er við fyrri útfærslur á sögum Dicks, að vísindaskáldskapnum yrði gert hátt undir höfði. Svo er ekki, The Adjustment Bureau er fyrst og fremst rómantísk kvikmynd með vísindaskáldsögu ívafi og ætla ég að slíkur efniviður sé ekki sá sem Dick lagði upp með í sögu sinni.

adjustment-bureau

3star

Það sem líka kemur á óvart er að hinn stóri rómantíski hluti myndarinnar, heldur henni á floti og gerir myndina fyrst og fremst að ágætri skemmtun. Kemur þar fyrst og fremst til góður samleikur hjá Matt Damon og Emily Blunt í hlutverkum áhugaverðra persóna. Vísindaskáldsöguhlutinn er að vísu afgerandi í lífi þeirra beggja en hann er svo illa uppbyggður að ekki er ein einasta flétta í honum sem virkilega virkar. Verður að segjast eins og er að halda því fram að til hliðar við okkar mannkyn sé annað mannkyn sem heldur uppi röð og reglu á jörðinni og tekur í taumanna þegar útlit er fyrir að við séum að leggja jörðina í eyði, er ekki mjög trúverðug sýn og hvað þá þegar engar skýringar eru til reiðu.

Ekki er vert að fara mikið í söguþráðinn í The Adjustment Bureau þar sem mikið er um atriði sem eiga að koma á óvart. Óhætt er þó að segja að aðalpersónurnar tvær, sem eru þingmaður á mikilli uppleið og ballettdansari með glæsilega framtíð, hittast og er það ást við fyrstu sýn. Þeim er þó ekki ætlað að eigast samkvæmt uppskrift þeirra sem ráða, heldur var hittingur þeirra aðeins ráðgerður í þetta eina skipti til þess að þingmaðurinn fengi innblástur í ræðu sem hann átti að halda. Ástin fer samt sínar eigin leiðir og þrátt fyrir ýmsar ráðstafanir í að hindra að þau hittist, þá tekst aldrei almennilega að stígja þeim í sundur og ástin verður aðeins öflugri eftir því sem þau hittast oftar.

Handritshöfundurinn George Nolfi, sem meðal annars skrifaði handritin að Ocean Twelve og The Bourne Ultimatium er hér að leikstýra sinni fyrstu kvikmynd og satt best að segja ætti hann að halda sig frekar við handritagerðina. Nolfi lendir hvað eftir annað í vandræðum með að láta söguna ganga upp í kvikmynd og öll atriðin þar sem ein persónan stekkur úr um dyr og lendir, t.d. úti á breiðstræti á meðan önnur sem eltir lendir í geymslurými, eiga betur heima í teiknimynd heldur en leikinni kvikmynd. En þrátt fyrir marga vankanta þegar kemur að góðum vísindaskáldskap þá er The Adjustment Bureau ágæt skemmtun og atburðarásin hröð og oft spennandi.
 
Leikstjóri: George Nolfi. Handrit: George Nolfi, eftir smásögunni Adjustment Team eftir Phillip K. Dick. Kvikmyndataka: John Toll. Tónlist: Thomas Newman. Leikarar: Matt Damon, Emily Blunt, Anthony Mackie, John Slattery og Terence Stamp. 105 mín.

Hilmar Karlsson

Share

   
Leikrit í einum þætti sem endurtekinn er þangað til allir fá leið á honum. Konan situr í lopapeysu við gluggann og horfir út. Eiginmaðurinn horfir í spegil og heldur hægri hendinni við bringspalir. Laumar henni öðru hvoru undir jakkaboðunginn og kinkar ánægður kolli. D: Óli, ég skal flytja


31. maí 2013| Stór Moggi (JGH)

24. maí 2013| Bitur reynsla (JGH)

03. maí 2013| Afsökun (JGH)





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is