leita









Í nóvember 1979 réðst stór hópur Írana á sendiráð Bandaríkjanna í Tehran og tók 52 sendiráðsstarfsmenn til fanga og heimtuðu að Bandaríkin skiluðu fyrrum keisara Írans í hendurnar á Ayatollah Khomeini, sem hafði komist til valda í blóðugri byltingu. Í kjölfarið varð eitt mesta hernaðarklúður bandaríska hersins nokkrum mánuðum síðar







Krumla bankanna er stór og fyrirferðarmikil. Hún hefur núna læst sig í um 50 stór og þekkt fyrirtæki sem bankarnir hafa yfirtekið eftir bankahrunið, nauðugir viljugir, og hafa öll tögl og hagldir í þeim sem stærstu kröfuhafar. Stóra málið er hvenær og hvernig þeir ætla að losa sig við







Myndin sem breyttist (BJ)
benedikt09Hinn virti, óháði fræðimaður Stefán Ólafsson prófessor birti þann 31.7. á bloggi sínu áhugaverða grein um tekjuskiptingu og vitnaði þar til talna Hagstofunnar, þar sem jöfnuður á Íslandi er reiknaður með svonefndum Gini-mælikvarða.
 
Enginn hefur efast um að tölur Hagstofunnar séu samanburðarhæfar við útreikninga í Evrópulöndum. Þær sýndu einmitt að á Íslandi var tekjujöfnuður mun meiri en í öllum löndum Evrópu nema einu árið 2004, en eins og sögufróðir menn muna var það síðasta ár Davíðs Oddssonar sem forsætisráðherra.
 
Stefán birtir í blogginu áhugaverða mynd (hægt er að stækka myndina með því að smella á hana):
 
 
Niðurstaða Stefáns útfrá myndinni er eftirfarandi:
 
NIÐURSTAÐA: Aukning ójafnaðar hér á landi fram að hruni var mun meiri en sést hefur í öðrum vestrænum löndum. Raunar var hún fordæmalaus.
Umskipti til aukins jafnaðar eftir hrun voru einnig fordæmalaus. Nú er staðan svipuð og var á árinu 2003 eða fyrr.
Niðurstöður mínar og samstarfsmanna minna eru vendilega studdar af gögnum Hagstofunnar (eins og hér hefur verið sýnt), en einnig af skýrslum OECD og skýrslum Eurostat.
 
Vegna þess að Stefán vitnar til Hagstofunnar er áhugavert að skoða mynd sem birtist í riti þess Laun, tekjur og vinnumarkaður 26.3. 2012. Þar birtist þessi mynd (hægt er að stækka myndina með því að smella á hana):
 
 
Glöggir lesendur sjá að tölurnar eru svipaðar og hjá Stefáni (sjá bláa ferilinn). Hagstofan sýnir hins vegar mestan ójöfnuð árin 2007-9, en árið 2007 komst Samfylkingin einmitt í stjórn. Ójöfnuðurinn varð mestur árið 2009, undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.
 
Allur ferillinn hefur færst til um eitt ár á ferð sinni frá Hagstofunni til Stefáns.
 
Nú vakna sú spurning hvorum hafi orðið á í messunni, Stefáni eða Hagstofunni? Það er ólíklegt að óháður, óflokksbundinn fræðimaður eins og Stefán hafi fært skalann til, í því skyni að sanna kenningu sína um að ójöfnuður hafi aukist fram að hruni en dregist svo saman eins og hans mynd sýnir.
 
Nei, Hagstofan hlýtur að hafa gert mistök.
 
 
PS Vegna athugasemdar sem birtist á bloggi Stefáns hafði ég samband umsjónarmann Hagstofunnar vegna könnunarinnar. Hann staðfesti að hún væri í samræmi við Evrópustaðla. Áðurnefnd skýrsla um könnunina byrjar einmitt svona:
 
Tekjur landsmanna dreifðust jafnar árið 2011 en þær hafa gert áður í lífskjararannsókn Hagstofunnar sem hófst árið 2004. Árið 2011 var kaupmáttur ráðstöfunartekna hjá öllum tekjuhópum sambærilegur við það sem hann var árið 2004.
 
Það er því ljóst að hér hefur ekki aðeins Hagstofunni orðið á heldur ekki síður Hagstofu Evrópusambandsins.
 
bj
Sjá einnig:
 
Share















   
Það hefur verið skrifað svolítið um kviðslit á þessari vefsíðu og að menn hafi farið í aðgerð líkt Gvendur á eyrinni forðum; kviðslitsaðgerð. Þannig vill til að við Benedikt fórum báðir í kviðslitsaðgerð á fyrstu vikum ársins. Enda fór um alla hér í fyrirtækinu sem spurðu í angist sinni







Business Week
Fortune
The Economist
Forbes
Børsen
Berlingske Business




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is