
Sú var tíðin að vinstrimenn báru virðingu fyrir þeim sem mótmæltu og nenntu að fægja spjöldin og taka þátt í kröfugöngum. Þeir fengu fiðring í frumurnar þegar von var á pólitískum hasar og mótmælum niðri í miðbæ og þeir klæddu sig í lopapeysurnar og örkuðu af stað.
Nú er öldin önnur. Nú mótmælir mótmæla-elítan mótmælum annarra. Nú gera vinstrimenn lítið úr þeim sem mótmæla vegna þess að það er gegn þeirra fólki. Sennilega hafa vinstrimenn sótt um einkaleyfi á mótmælum; að þeir einir megi mótmæla og kunni að mótmæla.
Eftir útifundinn á Austurvelli, þar sem útgerðarmenn, sjómenn, fiskverkafólk, sveitastjórnarmenn og aðrir þeir sem eru á móti kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar mættu til leiks, hefur fjandinn orðið laus hjá elítunni.
Það er komin samkeppni við okkur í mótmælum? Hvað vill þetta sjóaragengi upp á dekk? Eru þessi mótmæli leyfileg? Veit Samkeppniseftirlitið af þessu?
Og viðbrögð elíutunnar á Alþingi?
Jú, sjómenn eru gungur sem láta útgerðarmenn skipa sér að mæta á Austurvöll. Jú, fiskverkafólk í frystihúsum er liðleskjur sem mótmæla fyrir hönd útgerðarmanna.
Steingrímur J. Sigfússonar var með sama harminn í hjarta og þegar hann ákærði Geir Haarde þegar hann mætti í sjónvarpsviðtal um útifundinn. Afar niðurdreginn sagði hann í að sér þætti dapurlegt að LÍÚ varpaði skugga sínum yfir lögbundinn frídag sjómanna með þessum aðgerðum.
Birni Val Gíslasyni, þingflokksformanni Vinstri grænna, sem er þekkt prúðmenni og virtur af öllum fyrir háttvísi, var að vonum brugðið og þótti háttalag útgerðarmanna afar ógeðfellt. „Sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu.“
Frídagurinn var víst ekki meiri en svo að Ólína Þorvarðardóttir sagði þetta: „Nú hafa útgerðarmenn siglt öllum sínum flota í land og stefnt öllu sínu starfsfólki á fullu kaupi til að standa þarna og hylla sig á Austurvelli.“
Það er ástæða til að staldra við þegar sómamanninum Birni Val Gíslasyni finnast mótmæli orðin „afar ógeðfelld“. Slík mótmæli hljóta að vera hreinn óþverri. Þetta lið sem mætti þarna á Austurvöll hlýtur að hafa verið búið að fá sér í tánna, að hans mati.
Merði Árnasyni, þekktum lopapeysukomma á árum áður, fannst mjög lítið til þessara mótmæla koma og sagði þau misheppnuð. Það er ekkert varð í þessi mótmæli, mín eru miklu betri.
Þetta var nánast eins og Jón Viðar væri að dæma leikrit; þetta var svo klént.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, kom hneykslaður fram í fréttum RÚV og sagði að þótt sambandið væri sammála LÍÚ í andstöðu við frumvörpin um stjórn fiskveiða og veiðigjöld, sem og gagnrýni á skort á samráði, ætli sambandið samt ekki að taka þátt í mótmælunum.
Jón Gunnar Björgvinsson, formaður stjórnar Samtaka íslenskra fiskimanna, sem er á móti frumvarpinu sagði í fréttum RÚV að sjómenn ættu á hættu að missa vinnuna ef þeir töluðu gegn málstað LÍÚ – og það væri sorglegt að útgerðarmenn píndu starfsfólk sitt til þess að mæta á mótmælafund.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna í norðvesturkjördæmi, segir með mikilli vanþóknun að það sé „ljótt að egna saman landsbyggð og höfuðborg“ með þeim hætti sem gert var á samstöðufundi útvegs- og sjómanna sem fram fór á Austurvelli.
Hún sagði LÍÚ hafa haldið uppi miklum hræðsluáróðri gegn fiskveiðifrumvörpum ríkisstjórnar og að fundurinn í gær hefði átt að tryggja það að frumvörpin yrðu að engu.
„Raunin varð önnur. Á Austurvöll mætti fjöldi fólks, ekki bara latte-fólk úr 101 Reykjavík, heldur fjöldi fólks af landsbyggðinni,“ sagði Lilja Rafney.
Það var rétt þetta Laufey. Latte-fólk úr 101. Þú þekkir hjörðina í sundur.
Og mikið rétt Laufey; það kom einmitt fjöldi fólks af landsbyggðinni á Austurvöll; til að mótmæla.
Ofan á allt þá byrjaði dagurinn á því að rafmagn fór af að hluta húsakynnum Alþingis við upphaf þingþfundar. Sá í efra gaf gula spjaldið. Það hafði lítil áhrif; ljósin slokknuðu en gáfnaljósin héldu áfram að tala í míkrafóninn.
Ég segi bara þetta: Það er ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af því að mótmæla-elítan hefur misst fiðringinn og hefur engan áhuga á mótmælum lengur. Að vísu felast mótmæli í því að mótmæla mótmælum annarra. Kannski er enn von.
Ég meina, þegar útgerðarmenn eru farnir að mótmæla þá er ekkert fútt í þessu lengur.
Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is