leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


AFÞREYING
28/05/2007 | 15:11

DVD-tónleikadiskar rokseljast

Sala á íslenskri tónlist á DVD-mynddiskum jókst mikið á síðasta ári: Bubbi, Björgvin og Sálin seldust samtals í rúmlega 43 þúsund eintökum

Texti: Hilmar Karlsson, Myndir: Ýmsir.

Björgvin Halldórsson var með þrenna tónleika í Laugardalshöll og var öllu tjaldað til, meðal annars var Sinfóníuhljómsveit Íslands fengin til aðstoðar.

Íslensk tónlistarútgáfa var mjög mikil á síðasta ári og almennt var sala góð en um það bil 200 titlar voru gefnir út á geislaplötum og hefur plötuútgáfa aukist jafnt og þétt á hverju ári. Ein athyglisverðasta viðbótin við hefðbundna plötuútgáfu var að gefnir voru út þrennir tónleikar á DVD-mynddiski með landsþekktum söngvurum. Var útgáfan fyrirferðarmikil í jólaplötuflóðinu. Auk þess var gefin út DVD- og hljómdiskur með börnum sem fékk góðar viðtökur.

DVD-tónleikadiskarnir voru með Bubba Morthens, Björgvini Halldórssyni og Sálinni og gospelkór og seldust þeir geysilega vel á síðustu vetrarmánuðum eða í rúmlega 43 þúsund eintökum. Þetta er í fyrsta sinn sem DVD-útgáfa á tónlist er svona viðamikil hér á landi en í mörg ár hefur DVD-tónlist með erlendum hljómsveitum, söngvurum og söngkonum verið á boðstólum og allir sem eitthvað mega sín í tónlistinni úti í hinum stóra heimi hafa gefið út tónleika á DVD-diski. Segja má að við höfum verið frekar lengi að taka við okkur hvað þetta varðar, en nú verður ekki aftur snúið og væntanlega kemur einhver tónleikaútgáfa af þessu tagi út á þessu ári.

Sálin og Gospelkór Reykjavíkur leiddu saman hesta sína í Laugardalshöllinni 15. september á tónleikum sem voru síðan endurteknir í desember.

Eiður Arnarsson er útgáfustjóri íslenskrar tónlistar hjá Senu sem gaf út tónleikadiskana þrjá. Hann segir að í raun hafi velgengni þessara útgáfna ekki komið á óvart: „Sálin, Björgvin og Bubbi eru með allra vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar og í öllum tilvikum var um að ræða mjög vel heppnaða og vel sótta tónleika. Auk þess þjóna allar þessar útgáfur eins konar „best of“ tilgangi og eru því enn söluvænlegri fyrir vikið. Við lögðum vissulega mjög mikið undir í öllum þessum útgáfum og kostnaður við upptökur, hljóðblöndun, hönnun og markaðssetningu hverrar þeirra var á bilinu sjö til átta milljónir króna en þær stóðu allar vel undir því. 06.06.06 Bubba seldist samtals í 15.326 eintökum fyrir jólin, Björgvin og Sinfóníuhljómsveit Íslands í 17.542 eintökum og Sálin og Gospelkórinn í 9.304 eintökum. Að auki gáfum við út Stóru stundina okkar sem er samstarfsverkefni Senu og  Stundarinnar okkar í RÚV. Sú plata innihélt einnig DVD-disk, eins og allar fyrri samstarfsútgáfur okkar, og sá nýi seldist í 3.941 eintökum.

Hvað varðar framhald á slíkum útgáfum segir Eiður ekkert fastákveðið í þeim efnum: „Þær verða samt örugglega fleiri, en það þarf sterka flytjendur til að standa undir svona útgáfum og þeir eru ekki á hverju strái.“ 

06.06.06 var yfirskrift afmælistónleika Bubba Morthens 6. júní á síðastliðnu ári og voru þeir festir á filmu og á DCD-mynddiskinum með tónleikunum má upplifa þá aftur. Á myndinni er Bubbi í stuði í einu laga sinna og heillar troðfulla Laugardalshöll.

Varðandi það að gefa út innlenda tónlist í öðru formi segir Eiður: „Vissulega er möguleiki að gera DVD-útgáfur með íslenskum tónlistarmönnum á einhvers konar heimildarmyndaformi og við höfum gert það, en sem aðalefni er það þó hæpið. DVD (og Blu-ray eða HD-DVD í framtíðinni) er í dag ekki síst notað sem aukaefni eða „added value“ í tónlistarútgáfu. Þá aðallega með heimildarefni en tónleikar geta staðið og standa sem sérstakar DVD-útgáfur. Ísland er lítill markaður en reynir þó að halda í við þessa þróun erlendis frá. Þó er undarlegt að sala tónlistar á DVD hefur ekki aukist jafnhratt hér og í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum. Undarlegt en satt. Hér á ég við alla tónlist, ekki bara íslenska.“

Share


22. október 2007| Matt Damon

16. október 2007| James Bond og Jason Bourne

04. júní 2007| Forest Whitaker


28. febrúar 2007| Bestu bítlalögin


STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is