leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


AFÞREYING
04/06/2007 | 11:00

Forest Whitaker

Viðkunnanlegur gæðaleikari sem lætur vel að leika persónur sem eru sakleysið uppmálað, aðrar persónur sem fyrst og fremst eru mannlegar, en látið ekki blekkjast af útlitinu. Hann getur eins vel leikið illmenni, morðingja og nú síðast einræðisherra sem hefur öðlast sess meðal verstu manna sem uppi hafa verið.

Texti: Hilmar Karlsson.

„Þegar ég var barn horfði ég eingöngu á kvikmyndir úr aftursæti fjölskyldubílsins í bílabíói. Að ég ætti nokkurn tíma möguleika á að leika í kvikmyndum datt mér ekki í hug. Það að ég sé verðugur þessa heiðurs í kvöld segir mér að allt er mögulegt. Það er mögulegt fyrir dreng frá Texas, sem trúir á drauma sína, nálgast þá með hjartanu og lætur þá rætast…..“

Þetta voru upphafsorð Forests Whitakers þegar hann tók við óskarsverðlaununum í lok febrúar á þessu ári. Whitaker stendur á hátindi ferils síns og hefur á þessu ári sópað til sín öllum helstu verðlaunum kvikmyndabransans í heiminum fyrir túlkun sína á einræðisherranum Idi Amin í The Last King of Scotland.

Forest Whitaker á að baki 24 ár í kvikmyndum. Þótt ekki hafi hann komist á tindinn fyrr en nú hefur hann ekki þurft að strögla þessi tuttugu ár. Hann fékk snemma stór tækifæri sem hann nýtti vel. Meðal annars var hann valinn besti leikarinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 1988 fyrir leik sinn í Bird, sem Clint Eastwood leikstýrði. Alla tíð hefur Forest Whitaker verið virtur leikari sem á að baki mörg eftirminnileg hlutverk. En segja má með The Last King of Scotland hafi hann komist í fámennan hóp kvikmyndastjarna sem skína hvað bjartast um þessar mundir. 

Efnilegur í ruðningi

Forest Whitaker fæddist í Longview í Texas 15. júlí 1961. Faðir hans var tryggingasali og móðir hans kennari og er hann einn fjögurra systkina, á eina eldri systur og tvo yngri bræður. Fjölskylda hans fluttist til Los Angeles þegar Whitaker var á barnsaldri og þar gekk hann í skóla. Á háskólaárum sínum þótti Whitaker efnilegur í ruðningi enda hafði hann líkamsbygginguna í þá íþrótt, er 1,89 á hæð og yfir 100 kíló að þyngd. Fékk hann skólastyrki út á hæfileika sína í ruðningi. Meiðsli gerðu það að verkum að hann varð að snúa við blaðinu, hætta í íþróttum og sneri hann sér þá að tónlistar- og leiklistarnámi.

Whitaker lauk námi 1982 og fór þá strax að leita fyrir sér í kvikmyndum og gekk mun betur en flestum. Sama ár og hann lauk námi fékk hann hlutverk í áreitninni og gamansamri unglingamynd, Fast Times at Richmond High, sem hefur með árunum öðlast virðulegan sess í sögu kvikmyndanna. Þar voru fleiri ungir leikara í misstórum hlutverkum sem urðu síðan þekktir, eins og Sean Penn, Jennifer Jason Leigh, Nicolas Cage, James Russo, Anthony Edwards og Judge Reinhold. Næstu árin lék Whitaker jöfnum höndum í kvikmyndum og sjónvarpi og fékk smátt og smátt stærri hlutverk, meðal annars gott hlutverk í Platoon, lék á móti Robin Williams í Good Morning Vietnam, á móti Paul Newman í Color of Money og á móti Richard Dreyfuss í Stakeout, misstór hlutverk sem hann gerði góð skil, en ekki aðalhlutverk.

Eitthvað hefur Clint Eastwood séð í Forest Whitaker sem tengdi hann við goðsögnina Charlie Parker þar sem Eastwood bauð Whitaker titilhlutverkið í Bird. Sú mynd var byggð á síðustu árum Parkers, sem hafði viðurnefnið Bird. Whitaker olli Eastwood ekki vonbrigðum, stóð sig frábærlega í hlutverkinu, var sannfærandi með saxófóninn og eins og áður segir hlaut hann verðlaun sem besti leikarinn í Cannes. Í kjölfarið gat Whitaker farið að vanda betur hlutverkavalið. Hann lék nú í mörgum gæðamyndum; einna eftirminnilegastur var hann í hlutverki hermannsins í The Crying Game og sem mafíumorðinginn í Ghost Dog: The Way of the Samurai. 

Forest Whitaker lék í mörgum myndum á tíunda áratugnum en fór í leiðinni að líta í aðrar áttir og 1995 leikstýrði hann sinni fyrstu kvikmynd, Waiting To Exhale, sem naut mikilla vinsælda. Í nánast öllum hlutverkum voru svartir leikarar og í aðalhlutverkum Whitney Houston og Angela Bassett. Hann leikstýrði síðan tveimur kvikmyndum til viðbótar, Hope Floats (1998) með Söndru Bullock og Harry Connick jr. í aðalhlutverkum og First Daughter (2004) þar sem Katie Holmes lék forsetadóttur sem ekki lætur að stjórn. Þá stofnaði hann eigið framleiðslufyrirtæki sem hefur bæði framleitt kvikmyndir og sjónvarpsefni.

Forest Whitaker hefur ekki slakað á eftir leiksigur sinn í The Last King of Scotland. The Air of Breath og Ripple Effect, sem hann lék í áður en The last King of Scotland var tekin til sýningar, bíða frumsýningar. Myndirnar Vantage Point og Where The Wild Things Are eru í lokavinnslu og um þessar mundir leikur Whitaker í sakamálamynd sem nefnist  Winged Creature þar sem mótleikkonur hans eru Kate Beckinsale og Dakota Fanning. 

Tengsl við Ísland

Það þótti tíðindum sæta þegar Baltasar Kormákur fékk Forest Whitaker til að leika eitt aðalhlutverkið í A Little Trip To Heaven, sem var tekin upp hér á landi þótt hún eigi  að gerast í Minnesota. Leikur hann rannsóknarmann á vegum tryggingafyrirtækis sem vinnur að því að leysa tryggingasvindl. Eftir að grunsamlegt mál um árekstur lendir á borði tryggingafyrirtækisins er hann sendur á stjá til að kanna málið. Myndin fékk ágætar viðtökur þótt ekki hafi hún fengið mikla dreifingu úti í hinum stóra heimi. Lagði Whitaker sitt af mörkum til að gera hana eftirminnilega.

Ekki er Forest Whitaker laus við Ísland þar sem Valdís Óskarsdóttir klippir Vantage Point sem verður frumsýnd í október en í henni leikur Whitaker eitt aðalhlutverkið. Valdísi til aðstoðar er Sigvaldi J. Kárason, en hann var einmitt einn þriggja klippara A Little Trip To Heaven.

Forest Whitaker hefur alla tíð verið annálað góðmenni, hann kemur vel fyrir og er yfirleitt hinn alúðlegasti í viðkynningu. Ekki græðir slúðurpressan mikið á honum. Whitaker hefur verið kvæntur leikkonunni Keishu Nash í tíu ár. Þau hittust þegar bæði léku í Blown Away. Þau eiga fjögur börn, tvö saman, Sonnet og True. Einn son, Ocean, átti hann fyrir og hún átti fyrir dóttirina Autumn.

Þegar Forest Whitaker var nýlega spurður hverjar væru minnisstæðustu kvikmyndirnar af þeim sem hann hefur leikið í nefndi hann þrjár: „Bird, vegna þess að í þeirri mynd tel ég mig hafa þroskast sem listamaður. Ghost Dog: The Way of  The Samurai vegna þess að við gerð hennar fór ég að skilja sitthvað um sjálfan mig sem ég hafði ekki áður gert mér grein fyrir. The Last King of Scotland, vegna þess hvernig mér tókst að koma í eina persónu allt sem ég hef lært á mínum leikferli.“

Hvernig Forest Whitaker nálgaðist Idi Amin

„Þetta var lífsreynsla sem breytti lífi mínu. Ég fór til Úganda með það í huga að reyna að skilja hvernig það væri að vera fæddur og uppalinn í Úganda. Ég vildi skilja hvernig þeir matast, hvernig þeir ala upp börnin sín og koma fram við eiginkonur sínar. Ég fékk leyfi yfirvalda til að kanna allt sem mig langaði að kanna. Ég settist með bróður Idi Amins undir mangótré og hann sagði mér sögur af bróður sínum, hvernig hann hefði verið og að hann hefði haldið tryggð við fæðingarbæ sinn með því að stofna til knattspyrnu- eða rugbyleikja. Allur þessi undirbúningur hjálpaði mér við að skilja Amin, komast nærri hugsunum hans og af hverju hann hagaði sér eins og raunin varð. Í lokin var ég 24 tíma á sólarhring í hlutverki Amins, í vöku sem draumi. Það var ekki fyrr en kvikmyndatökum lauk að ég leyfði mér að sleppa persónunni. Það fyrsta sem ég gerði þá var að fara í sturtu vegna þess að mér fannst ég þurfa að skrúbba hann af mér. Ég lét það ekki nægja heldur byrjaði að kalla og öskra til að losna við rödd Amins og öðlast aftur mína eigin rödd.“ 

Share


22. október 2007| Matt Damon

16. október 2007| James Bond og Jason Bourne

04. júní 2007| Forest Whitaker


28. febrúar 2007| Bestu bítlalögin


STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is