leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


AFÞREYING
16/10/2007 | 14:29

James Bond og Jason Bourne

Eiga lítið sameiginlegt en samt er verið að bera þá saman og deilt um hvort Jason Bourne sé verðugur arftaki James Bond.

Texti: Hilmar Karlsson.

Það er örugglega lítill vandi að koma af stað fjörugum umræðum um það hvor sé flottari og klárari, James Bond eða Jason Bourne. Þeir sem telja að James Bond sé útbrunninn og hafi ekkert nýtt að fram að færa hafa tekið Jason Bourne fagnandi á meðan hörðustu aðdáendur James Bond fá fyrir hjartað sé Jason Bourne nefndur eins og um jafningja sé að ræða. Matt Damon, sem leikur James Bond, kastaði olíu á eldinn þegar hann sagði að Bond yrði alltaf bundinn við sjöunda áratuginn og persónan væri byggð á gildi þess tíma.

Tók hann fram að James Bond ætti ekki heima í nútímanum en sagði um leið að Bourne væri hvorki betri né verri en Bond. Og Damon lauk umsögn sinni á að segja að Bond sé heimsvaldasinni og kvennabósi sem drepi fólk með bros á vör, drekki martini og segi brandara. Bourne sé aftur á móti óforbetranlegur einkvænismaður, eigi erfitt með að drepa og þótt unnustan hafi verið myrt geti hann ekki sleppt hendinni af henni.

Þarna er kannski komist að meginkjarnanum þegar James Bond og Jason Bourne er líkt saman, þeir eru andstæður og eiga ekkert sameiginlegt nema að hafa verið leyniþjónustumenn og vera með sömu upphafsstafi í nöfnum sínum. James Bond er toppmaðurinn í bresku leyniþjónustunni en Jason Bourne er hundeltur af fyrrverandi atvinnurekendum. Bond fær alltaf stúlkuna í lokin en Bourne missti sína í fyrstu myndinni og hefur ekki jafnað sig enn sem komið er. Og loks vefst ekki fyrir Bond að drepa óvininn á meðan Bourne er með martraðir yfir því sem hann hefur gert.

Það er því ekki nema von að spurt sé: Hvernig getur nokkrum manni dottið í hug að bera þá saman? Svarið er fyrst og fremst að finna í þeirri staðreynd að kvikmyndir með þeim köppum eru gífurlega vinsælar og ljóst er að James Bond og Jason Bourne munu einoka kvikmyndamarkaðinn fyrir njósnamyndir í framtíðinni. Það að kvikmyndahúsgestir skiptist í tvo hópa, með eða á móti, er ósköp eðlilegt þegar um er að ræða hvor er meiri hetja en að bera þá saman að öðru leyti er ekki raunhæft.

Í áratugi hafa alltaf verið að koma fram kvikmyndapersónur sem líkt er við James Bond. Þær hafa fljótlega horfið á meðan James Bond heldur áfram að vera til. Nú er ljóst að Jason Bourne er kominn til að vera, kjósi þeir sem standa að seríunni að halda henni áfram. Fyrstu þrjár myndirnar náðu allar miklum vinsældum svo ætla má að áfram verði haldið á sömu braut.

Höfundur James Bond, Ian Fleming, og höfundur Jason Bourne, Robert Ludlum, áttu einnig fátt sameiginlegt. Fleming var gamaldags Breti með skólavist að baki í breskum heimavistarskólum og vann í leyniþjónustunni í síðari heimsstyrjöldinni. Robert Ludlum var uppgjafa leikari sem lifði rótlausu lífi þegar hann skrifaði sína fyrstu bók 1970. Hvorugur þeirra lifði að sjá sköpunarverk sína verða ofurhetjur kvikmyndanna. Fleming náði að vísu að sjá fyrstu tvær myndirnar, Dr. No og From Russia With Love, en þá var Bond ekki orðinn að þeirri goðsögn sem hann er í dag og Ludlum dó ári áður en The Bourne Identity leit dagsins ljós.

Þess má geta að þriggja tíma sjónvarpsmynd var gerð eftir The Bourne Identity árið 1988 sem sýnd var víða um heim og var tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna. Þá lék Richard Chamberlain Jason Bourne. Þeir Fleming og Ludlum áttu það sameiginlegt að vera miklir reykingamenn og létust báðir vegna hjartaáfalls. Ian Fleming var 56 ára þegar hann lést 1964 og Robert Ludlum 73 ára þegar hann lést 2001.


 

Share


22. október 2007| Matt Damon

16. október 2007| James Bond og Jason Bourne

04. júní 2007| Forest Whitaker


28. febrúar 2007| Bestu bítlalögin


STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is