leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


AFÞREYING
22/10/2007 | 16:04

Matt Damon

Öruggasta fjárfestingin í Hollywood er að fá Matt Damon til að leika í kvikmynd.

Texti: Hilmar Karlsson

Hið virta fjármálatímarit Forbes gerði nýlega könnun á því hvaða leikari í Hollywood skilaði mestum hagnaði. Það kom nokkuð á óvart að Matt Damon skyldi lenda í fyrsta sætinu. Nú er hann ekki sá leikari sem þénar mest, þótt ekki þurfi hann að kvarta yfir launum sínum en hann fær 10-15 milljón dollara fyrir eina kvikmynd. Þeir leikarar sem hæstu launin fá fara yfir 20 millljón dollara fyrir kvikmynd. Eins og aðrir launaháir leikarar slær hann stundum af launakröfum ef í boði er hlutverk í ódýrri kvikmynd sem honum líst vel á.

Könnunin var framkvæmd þannig að teknar voru þrjár síðustu kvikmyndir og reiknaður út hagnaður miðað við laun. Kom í ljós að af hverjum einum dollara sem Matt Damon fékk í laun komu til baka 29 dollarar. Þessi upphæð mun örugglega hækka þegar nýjasta kvikmynd hans, The Bourne Ultimatum, fer inn í reikningsdæmið, en hún er nú sýnd við metaðsókn um allan heim. Í öðru sæti var Brad Pitt og jafnir í þriðja sæti voru Johnny Depp og Vince Vaughn. Jennifer Aniston er sú leikkona sem besta fjárfestingin er í.

Matt Damon, sem hefur verið að fylgja eftir The Bourne Ultimatum, tekur þessum fréttum af mikilli rósemi en sjálfsagt á hann eftir að hækka meira í launum þegar hann gerir næst samning og fer kannski í 20 milljón dollara flokkinn.

Æskuvinir. Ben Affleck og Matt Damon hafa verið vinir í 25 ár.

Fórnaði námi í Harvard fyrir leiklistina

Matt Damon fæddist í Cambridge í Massachusetts 8. október 1970. Eftir hefðbundið skólanám settist hann á skólabekk í Harvard  árið 1988 og gekk vel til að byrja með, en áhuginn á leiklist jókst að sama skapi enda hafði hann fengið sitt fyrsta hlutverk í kvikmynd sama ár og hann hóf nám í Harvard. Var það lítið hlutverk í Mystic Pizza. Hann hætti námi og lék nokkur smáhlutverk í kvikmyndum þar til hann fékk góð hlutverk í Geronimo: An American Legend  (1993) og Courage Under Fire (1995).

Æskuvinur Matt Damons er Ben Affleck, en þeir kynntust 1981. Það var eins fyrir honum komið og Damon, hann var á uppleið sem leikari. Þeir félagar tóku þá ákvörðun að skrifa handrit saman að kvikmynd þar sem gert var ráð fyrir góðum hlutverkum fyrir þá báða. Þeir sýndu kunningjum í leikstjórastéttinni handritið, meðal annars Rob Reiner, sem ráðlagði þeim að breyta því, sem og þeir gerðu, og handritið að Good Will Hunting varð til. Breytingin gerði að verkum að hlutverk Ben Afflecks minnkaði mikið þar eð hlutverk Robin Williams var stækkað. Good Will Hunting var afar vel tekið og fengu þeir félagar óskarsverðlaunin fyrir handrit sitt og Matt Damon var tilnefndur til óskarsverðlauna sem besti leikari í aðalhlutverki, Robin Williams fékk óskarinn sem besti leikari í aukahlutverki.

Eftir Good Will Hunting voru allar dyr opnar fyrir Matt Damon og lék hann aðalhlutverkið í nokkrum úrvalsmyndum í framhaldinu, svo sem Saving Private Ryan, The Talented Mr. Ripley, The Rainmaker og Ocean's Eleven, en sú mynd náði miklum vinsældum og hafa tvær framhaldsmyndir fylgt í kjölfarið sem einnig hafa gert það gott.

Njósnarinn minnislausi

Þegar hér er komið sögu hafði Matt Damon byggt upp traustan og farsælan leikferil. Hann átti þó eftir að sanna að hann gæti einn haldið mynd uppi. Tækifæri til þess fékk hann þegar honum var boðið hlutverk Jason Bourne, fyrrum njósnara sem missir minnið, í The Bourne Identity. Damon lék Bourne með miklum glæsibrag og hefur nú endurtekið leikinn tvisvar. Robert Ludlum skrifaði aðeins þrjár skáldsögur um Jason Bourne, sem hafa nú allar verið kvikmyndaðar. Ekki er þó loku fyrir það skotið að gerðar verða fleiri myndir.

Matt Damon hefur sjálfur sagt að það hafi verið mikil skemmtun að gera þá fyrstu: „Ég var ekki viss um þá næstu, aðallega vegna þess að ég vissi ekki hver Paul Greengrass (leikstjóri) var. En eftir að ég sá Bloody Sunday varð ég viss um að ef einhver gæti gert betur væri það Greengrass og nú segi ég að ef Paul Greengrass er tilbúinn að leikstýra fjórðu myndinni þá er ég jafnvel tilkippilegur."

Hvað varðar aðrar kvikmyndir þá hefur Matt Damon meðfram því að leika í þremur Ocean's-myndum leikið stór hlutverk í Syriana, The Departed og The Good Shepherd, sem allar hafa fengið góðar viðtökur. Þá hefur hann lokið við að leika í tveimur kvikmyndum sem eftir á að sýna á þessu ári, Margaret, sem fjallar um 17 ára stúlku sem verður vitni að banaslysi og verður fyrir andlegu áfalli, og lítið hlutverk í nýjustu kvikmynd Francis Ford Coppola, Youth Without Youth. Næstu stóru hlutverk Damons verða í The Fighter, sem Darren Aronofsky leikstýrir og Imperial Life in the Emerald City, sem Paul Greengrass leikstýrir.

Rólegt einkalíf

Matt Damon hefur ekki verið mikið á blaðsíðum slúðurblaða enda ekki gefið tilefni til: „Ef einhver hefði viljað ljósmynda líf mitt þá hefði sá hinn sami dáið úr leiðindum." Damon hefur samt ekki alveg farið varhluta af athyglinni, sérstaklega þegar hann var í tygjum við leikkonurnar Winonu Ryder, Claire Danes og Minnie Driver. Árið 2003 kynntist hann Luciönu Bozan, sem er frá Argentínu, við tökur á kvikmyndinni Stuck on You. Þau giftu sig 9. desember 2003 og eiga eina dóttur, Isabellu, sem fæddist 11. júní 2006. Fyrir átti Luciana dótturina Alexiu, sem Damon hefur gengið í föður stað.

Matt Damon hefur mikið látið til sín taka í velferðarmálum. Hann ásamt George Clooney og Brad Pitt eru helstu stuðningsaðilar One, félagsskapar sem berst gegn eyðni í heiminum og fátækt í Afríku og Asíu. Matt Damon er einnig einn af stofnendum Not On Our Watch, sem eru samtök sem vekja athygli á stríðshrjáðum hlutum heimsins og hafa verið dugleg að miðla fréttum frá Darfur á síðustu mánuðum. Þá er Damon einnig einn af stofnendum H2O Africa, sem er góðgerðarhluti samtakanna Running the Sahara.

Hvað varðar önnur áhugamál Matt Damons, þá er hann mikill hafnaboltaaðdáandi og þeir Ben Affleck grjótharðir stiuðnungmenn Boston Sox liðsins og mæta á leiki hvenær sem tækifæri gefst.


 
  
 
 


 

Share


22. október 2007| Matt Damon

16. október 2007| James Bond og Jason Bourne

04. júní 2007| Forest Whitaker


28. febrúar 2007| Bestu bítlalögin


STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is