leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


AFÞREYING
01/04/2008 | 16:46

Rapparinn sem sló í gegn í sjónvarpi og kvikmyndum: Will Smith

Texti: Hilmar Karlsson.

Will Smith er margt til lista lagt og hefur náð langt bæði í tónlist og á hvíta tjaldinu. Hann er í dag ein stærsta og vinsælasta kvikmyndastjarna heims, en lætur frægðina ekki vefjast fyrir sér, er mörgum til fyrirmyndar hvað varðar líferni og kann best við sig heima hjá eiginkonu og börnum. Hann segir fjölskylduna vera það dýrmætasta sem hann á. Það er ekki margt í lífi Smiths sem bendir til þess að ungur að árum hafi hann verið í fremstu röð rappara, þar sem fjölskyldulíf er ekki hátt metið. Frá upphafsárum hans í rappinu hefur ferill hans, fyrst í sjónvarpi, aftur í tónlist og síðan í kvikmyndum verið sigurganga, sem náði hæstu hæðum í nýjustu kvikmynd hans, I Am Legend. Þar er hann nánast einn á ferð í New York framtíðarinnar, þegar vírus hefur eytt mestöllu lífi á jörðinni. Fór hann létt með að halda áhorfendum við efnið en satt best að segja missti myndin nokkuð af styrkleika sínum þegar aðrar persónur birtust í lokin.

Will Smith er jafnvígur á öll hlutverk. Hann heldur uppi kvikmynd hvort sem um  rómantíska gamanmynd er að ræða (Hitch), fjölskyldumynd (Pursuit of Happyness) eða vísindaskáldsögu (I Robot). Leikur hans er áreynslulaus og í framtíðinni eigum við örugglega eftir að sjá hann í stórum dramatískum hlutverkum, en ekki hefur verið mikið um slíkt á ferli hans. Þau sem næst komast dramatíkinni eru hlutverk Muhameds Ali í Ali (2001) og í kvikmynd Robert Redfords, The Legend of Bagger Vance, (2000). Að langmestu leyti hefur hann leikið í rándýrum hasarmyndum, sem allar hafa fengið mikla aðsókn, má þar nefna Independence Day, Bad Boys, I og II, Men in Black, I og II, Enemy of the State, I Robot, I am Legend og Wild, Wild West, en Smith hefur sagt að aldrei hafi hann séð eins mikið eftir að hafa leikið í kvikmynd eins og þeirri mynd: “Þegar Wild Wild West fór í efsta sæti vinsældalistans, tók inn 52 milljónir dollara fyrstu helgina, dauðskammaðist ég mín, ég vissi sem var að myndin var mjög léleg.”

Will Smith ásamt syni sínum Jaden Smith í Pursuit of Happyness.

Ferski prinsinn

Will Smith fæddist í Philadelphiu 25. september 1968. Móðir hans er kennari og faðirinn sölumaður. Þau skildu þegar Smith var þrettán ára gamall. Hann á þrjú systkini, eldri bróður og yngri tvíbura. Strax í grunnskóla byrjaði hann að rappa með félögum sínum og undir nafninu Fresh Prince stofnaði hann ásamt vini sínum, Jeff Townes, dúettinn DJ Jezzy Jeff and The Fresh Prince. Síðar bættist við í hópinn Clarence Holmes, sem gekk undir nafninu Ready Rock C, og dúettinn varð tríó. Þeir félagar vöktu strax athygli fyrir skemmtilega sviðsframkomu og 1988 fengu þeir fyrstu Grammy-verðlaunin sem veitt voru fyrir rapp. Ekki varð tríóið langlíft og reyndi Will Smith fyrir sér sem sjálfstæður rappari, en hafði ekki erindi sem erfiði að því sinni.

Það er svo árið 1991 sem sjónvarpsstöðin ABC tryggir sér Will Smith og felur handritshöfundum það verkefni að búa til gamanþátt þar sem aðalpersónan er Fresh Prince. Úr varð mjög vinsæl sjónvarpssería, The Fresh Prince of Bel Air, þar sem Will Smith þótti sýna ótvíræða hæfileika sem leikari. Serían gekk til ársins 1996 og á þessum árum haslaði Smith sér völl aftur á tónlistarsviðinu og frá honum komu sólóplötur sem náðu metsölu. Í kjölfar vinsælda sjónvarpsseríunnar fóru kvikmyndatilboðin að streyma til hans. Fyrsta kvikmyndin þar sem hann lék stórt hlutverk var Six Degrees of Separation, þar sem mótleikari hans var Donald Sutherland. Ekki vakti sú mynd mikla athygli. Það sama er ekki hægt að segja um næstu kvikmynd hans, Independence Day, sem í dag er ein af vinsælustu kvikmyndum allra tíma.

Independence Day var gerð 1996 og hefur ferill Will Smiths í kvikmyndum verið síðan samfelld sigurganga. Tvisvar hefur hann verið tilnefndur til óskarsverðlauna, fyrir leik í aðalhlutverki, eru það myndirnar Ali og Hitch. Um muninn á að vera rappari og leikari segir Smith: ”Þetta er tvennt ólíkt. Þegar verið er að rappa þá ertu þú sjálfur, en í kvikmyndum ertu alltaf að túlka aðra persónu og þegar þú ert búinn að setja þig í hlutverkið ertu orðin önnur persóna.”

Will Smith í I am Legend þar sem hann var nánast eini leikarinn megnið af myndinni.

Fjölskyldan og áhugamál

Sjálfsagt hafa fáir leikarar sem hafa náð jafnlangt og Will Smith tekið jafnafdráttarlausa afstöðu til fjölskyldulífsins: ”Ég er þeirrar trúar að maður og kona eigi að vera saman og stofna fjölskyldu. Í mínum huga er það hreinasta form hamingjunnar.”

Will Smith og leikkonan Jada Pinkett Smith hafa verið gift í tíu ár. Hann á að baki stutt hjónaband með Sheree Zampino og áttu þau saman einn son, Willard Smith, kallaður Trey, sem er nú15 ára. Þegar hann er minntur á fyrra hjónaband sitt út frá ummælum sínum um fjölskyldulífið, viðurkennir hann að hann hefði átt að vinna betur í þeim málum: ”Hjónabandið var ekki svo slæmt, en ég var ekki tilbúinn.”

Will Smith kynntist núverandi eiginkonu sinni við gerð sjónvarpsseríunnar The Fresh Prince of Bel Air. Jada Pinkett, eins og hún hét þá, kom í prufu fyrir fyrir hlutverk, sem hún fékk ekki, en grunnurinn var lagður að nánara sambandi. Will Smith og Jada Pinkett Smith eiga tvö börn saman, Jaden Christopher Smith, 9 ára og Willow Smith, 7 ára, sem bæði hafa leikið hlutverk á móti föður sínum, Jaden lék son hans í Pursuit of Happyness og Willow lék dóttur hans í I am Legend.

Will Smith er liðtækur golfari eins og sjá má í I am Legend þar sem hann æfir sveifluna af palli á herskipi. Golfáhugann fékk hann þegar hann lék í  Legend of Bagger Vance, dularfullan kylfusvein. Hann er einnig liðtækur skokkari og hefur tekið þátt í góðgerðarhlaupum. Einhver sagðist hafa tekið eftir því að Will Smith sé eitthvað á hlaupum í öllum sínum kvikmyndum. Þá segist Smith vera hálfgert tækjafrík: ”Ég var alltaf góður í reikningi og ég er viss um að ef ég hefði ekki orðið söngvari og leikari væri ég að vinna í tölvu- eða sjónvarpsbransanum, væri sjálfsagt gaurinn sem fann upp fjarstýringuna.”

Jada Pinkett Smith og Will Smith hafa verið gift í tíu ár.


 

Share


22. október 2007| Matt Damon

16. október 2007| James Bond og Jason Bourne

04. júní 2007| Forest Whitaker


28. febrúar 2007| Bestu bítlalögin


STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is