
Texti og myndir: Bjarni Brynjólfsson.
Sjóbleikjuveiði á Grænlandi er eflaust ein skemmtilegasta veiði sem hægt er að komast í um þessar mundir. Verðið spillir heldur ekki fyrir því það er alls ekki dýrt að skreppa til Grænlands í veiði miðað við verð á veiðileyfum hér á landi.
Flogið er með Flugfélagi Íslands til Nuuk en þar taka reyndir leiðsögumenn við veiðimannahópunum. Hægt er að velja um ferðir þar sem gist er úti í óbyggðum í rúmgóðum og fallegum veiðikofum í eigu heimamanna eða þá að gist er á hóteli í Nuuk þar sem öll nútímaþægindi eru við höndina. Einnig er hægt að gista í tjöldum.
Greinahöfundur við árós sem rennur úr undurfögru tærbláu fjallavatni. Þetta er miklar hreindýraslóðir og sá greinahöfundur einstaka dýrum bregða fyrir. Ósinn var stútfullur af bleikju sem þakti botninn eins og teppi.
Nuuk-fjörðurinn er gríðarstór en í honum eru fjölmargir innfirðir og eru því veiðimöguleikarnir nánast ótæmandi. Heimamenn leiða veiðimenn á bestu veiðislóðirnar en þangað er nánast undantekningarlaust farið á bátum og tekur siglingin allt frá klukkutíma upp í tvo tíma.
Í nágrenni Nuuk er nánast eingöngu veitt í ám sem koma svo sannarlega á óvart. Þær eru allar frekar stuttar, 4–6 kílómetrar að lengd, en eru vatnsmiklar og geyma ógrynni af bleikju. Svo mikið er af bleikju þarna að sums staðar er botninn beinlínis þakinn.
Það er sjaldan sem veiðimenn fá þá tilfinningu að þeir séu að veiða í ósnortnum ám en á Grænlandi varð sú tilfinning allsráðandi. Tökugleði bleikjunnar er slík að auðvelt var að fá fisk í nánast hverju kasti þegar réttu flugurnar voru settar undir. Eftir að hafa veitt kannski fimm til tíu bleikjur í hverjum hyl fann maður sig knúinn til að færa sig á nýjar slóðir og prófa eitthvað nýtt.
Árnar eru margar hverjar vatnsmiklar og geyma ótrúlegt magn af bleikju. Hér er kastað á fossbrotið í einum af efstu stöðunum í á sem gaf m.a. um níu punda nýgengna sjóbleikju.
Í einum hylnum, í ósi fjallavatns, vöktu mörg hundruð bleikjur samtímis þegar lygndi og flugan fór að sýna sig. Þar var svo krökkt af bleikju að ég trúði hreinlega ekki eigin augum. Ég ákvað að gera tilraun, kastaði sömu bleiku flugunni um 20 sinnum og í hvert sinn eltu tíu til tuttugu stykki. Eltingarleikurinn endaði alltaf með því að ein þeirra hremmdi fluguna með hvelli. Ég ákvað því að skipta um agn og setti undir þurrflugu sem vakti álíka hrifningu. Takan var hreinlega óstöðvandi og eftir að hafa landað um þrjátíu fiskum á bilinu 1–3 pund ákvað ég að færa mig neðar í ána á nýjar slóðir þar sem kannski leyndust stærri fiskar.
Veiðin á Grænlandi vakti með mér þvílíkar ástríður því á fyrsta degi var ég svo heppinn að setja í og landa ógleymanlegum fiski. Það var nýgengin, silfruð og spikfeit sjóbleikja sem vó um 8–9 pund og jafnframt fyrsti fiskurinn minn í veiðiferðinni. Þessari bleikju landaði ég eftir um 20 mínútna stórskemmtilega viðureign þar sem ég þurfti að beita allri minni kunnáttu og útsjónarsemi enda tók hún litla flugu. Svo kröftug var þessi bleikja að þegar hún tók hélt ég að allt væri fast í botni hjá mér. Ég fann þó fljótt að um stóran fisk var að ræða sem ætlaði alls ekki að gefa sig án baráttu. Rokurnar sem þessi gullfallega bleikja tók voru ekki af verri endanum. Þetta var á stórri breiðu með broti fyrir neðan og ég mátti hafa mig allan við að halda henni í hylnum þegar hún reif út þrjátíu til fjörutíu metra af línu í einni sjóðandi vitleysu. Fluguhjólið mitt fyrir línu númer fjögur beinlínis titraði og skalf og stöngin kengbognaði niður í skaft. Eitt augnablik datt mér í hug að ég hefði sett í selkóp sem væri á eftir bleikjutorfunum. Við vorum jú einu sinni á Grænlandi og maður vissi ekki alveg við hverju átti að búast. Um leið og þessi hugsun stakk sér niður í huga mér stökk þessi fallegi boltafiskur og ég nánast tapaði mér af gleði. Veiðigyðjan var með mér þennan dag og reyndar alla dagana sem veitt var á Grænlandi. Hins vegar fengum við ekki fleiri slíkar breddur á færin þótt margar væru feiknavænar, allt upp í fimm pund. Veiðifélagar mínir settu hins vegar í fiska sem slitu taumana eins og tvinna og víða sáum við stóra fiska í tærum ánum.
Hægt er að kaupa gistingu í þessum smekklegu veiðikofum í þessum fallega fjarðarbotni. Tvær frábærar silungsveiðiár eru í göngufæri við gistinguna.
Þegar veitt er á Grænlandi kemur náttúran sífellt á óvart. Hún er svo tær og ómenguð, fjallasýnin stórkostleg. Náttúrufegurðin í grænlensku fjörðunum er engu lík. Þarna í fjarðarbotnunum eru engin vélknúin farartæki og veiðimenn ferðast um á tveimur jafnfljótum við árnar. Oftast er nokkur göngutúr upp að veiðistöðunum, sérstaklega þegar líða tekur á veiðitímann því þá er bleikjan ofar í ánum. Á göngutíma bleikjunnar, sem er frá miðjum júní fram í ágústlok, er hún yfirleitt neðar að sögn heimamanna. Það kom hins vegar á óvart að megnið af bleikjunni sem við veiddum var nýgengin en við vorum á Grænlandi í septemberbyrjun.
Í flestum fjörðunum eru sumarhús og veiðikofar í eigu Grænlendinga. Ekki er greitt fyrir veiðileyfi í ánum, aðeins fyrir ferðaþjónustu eins og bátsferðir, leiðsögn, gistingu og uppihald. Við rákumst stundum á Grænlendinga sem voru að renna fyrir fisk með spúnastöngunum sínum en fluguveiði hefur lítið verið stunduð í þessum ám. Flugan er sterkara agn þarna ef eitthvað er.
Grænlensku firðirnir eru einstaklega stórbrotnir og náttúran ægifögur. Siglt er á góðum bátum frá Nuuk til að komast á veiðislóð og er það ógleymanleg lífsreynsla.
Við sáum hreindýr á sveimi í fjarðarbotnum og heyrðum ótrúlegar sögur af hreindýraveiði frá leiðsögumönnum okkar sem voru þrautreyndir hreindýraveiðimenn.
Hreindýraveiðin hefst þarna í september og er enginn kvóti á veiðidýrum en þó þarf leyfi til slíkra veiða. Auðvelt er fyrir áhugasama að nálgast slíka veiði í gegnum Flugfélag Íslands og samstarfsaðila þess á svæðinu.
Öll umgjörð og þjónusta við veiðimenn þarna var fyrsta flokks. Leiðsögumennirnir skemmtilegir, fróðir um landhætti og veiðislóð. Við gistum á Hótel Hans Egede í Nuuk og vorum yfirleitt komnir heim á hótel um kvöldmatarleytið, gjörsamlega búnir en alsælir með veiðina og árnar sem við veiddum í. Á hótelinu er fyrsta flokks veitingastaður og notalegur bar með einstöku útsýni yfir Nuuk.