leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


 FERÐALÖG
18/12/2006 | 13:07

Margur er Kínverjinn

Það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég steig á kínverska grundu var fólkið. Ekki það að ég hafi búist við fámenni. En að maður þyrfti að troðast út úr flugstöðinni í Beijing, það kom mér á óvart.

Texti: Páll Stefánsson

Verið er að byggja nýja risa flugstöð gegnt þeirri gömlu, sem verður tilbúin fyrir Ólympíul­eikana árið 2008. Og það snýst margt um það ár, Kínverjar ætla sér að vera búnir að hinu og þessu, fyrir leikana. 

Ég var reyndar á leið vestur til Góbí-eyðimerkurinnar í Ganshu-héraði. Til borgarinnar Jiayuguan, sem er í þriggja og hálfs tíma flugfjarlægð frá höfuðborginni. Og þar endar Kínamúrinn í vestri.

En múrinn er lengsta mannvirki í veröldinni eða 6.352 km langur og það sem hefur verið lengst í byggingu. Byggingartíminn nítján hundruð ár, frá þriðju öld fyrir Krist, og lauk í byrjun þeirra átjándu.

Sú þjóðsaga er sterk að múrinn sé eina mannvirki jarðar sem sjáist frá tunglinu. Því var fyrst haldið fram af rithöfundinum Richard Halliburton, í bókinni Second Book of Marvels. Og þjóðsagan rataði inn í margar bækur eftir það.

Njáll Handsterki sagði eftir frægðarför sína til tunglsins að hann sæi engin mannvirki eða borgir. Kínamúrinn er jú bara hraðbrautarbreiður og jarðarlitaður, þannig að hann fellur vel inn í landslagið. En stórfenglegur er hann. Og eins og Maó sagði: „Þú ert ekki maður með mönnum nema þú hafir stigið á Kínamúrinn.“

Kína er stórt, fjórða stærsta ríki heims, en samt er landið eitt tímabelti, í stað fimm ef klukkan væri rétt á hverjum stað. Kínverjar eru 4300 sinnum fjölmennari en við Íslendingar. Þingmennirnir á þjóðþingi þessa fjölmenna lands eru 2.985 en það gerir um hálfa milljón íbúa á hvern þingmann.

Á Íslandi eru 4.870 íbúar bak við hvern þingmann. Ef Kínverjar hefðu sama íbúafjölda bak við hvern þingmann og við, þá væru á kínverska þinginu 280.000 þingmenn eða tæplega öll íslenska þjóðin.

Maturinn, menningin þarna austur frá er merkileg. Þarna er búið að leggja samyrkjubúunum. Hver hefur sinn skika til að yrkja. En mikill munur er á efnahag þeirra sem búa í sveitinni eða í borginni sjálfri. Bæði eru laun lág og atvinnuleysi hrjáir sveitirnar.

En í Jiayuguan-borg búa 170.000 manns og vinna um 75% hjá einum atvinnurekanda, stálbræðslunni í bænum. Stór og voldug verksmiðja sem spúir bláum reyk upp í bláan himininn.

En allt um kring er Góbí-eyðimörkin, með sínum gráa sandi, fjöllum í fjarska. Og inn á milli eru vinjar þar sem vex allt sem vaxið getur. Appelsínur, chilli, tómatar og korn. Og síðan heyrir maður jarm úr kind eða geit, meðan glaðlegur uxi dregur kerru fulla af hvítlauk, eitthvað áfram.

Og það sama tók við á heimleið. Það tók hálftíma bara að komast inn í flugstöðina í Beijing. Nýja flugstöðin verður opnuð 2008, eins og allt annað.

Share



01. apríl 2008| Vetur konungur

28. maí 2007| Sunnan við sólina

18. desember 2006| Margur er Kínverjinn


10. júlí 2006| Ævintýralandið Panama

06. júlí 2006| Í fótspor Davíðs skálds

06. júlí 2006| Á Kilimanjaro



STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is