leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


 FERÐALÖG
14/04/2008 | 11:00

Nepal: Blákaldur raunveruleikinn

Texti: Svava Jónsdóttir. Myndir: Bjarni Grímsson.

Ljósmyndarinn Bjarni Grímsson fór með fjölskyldu sinni til Nepal um páskana í fyrra til að heimsækja vini þeirra, Christopher og Enkhe. „Það vill svo vel til að þau búa þar níu mánuði á ári og þau buðu okkur að heimsækja sig yfir páskana. Það er ekki hægt að afþakka svoleiðis boð.“

Bjarni segir að landið sé mjög fallegt og íbúarnir yndislegir. „En því miður varð maður einnig var við mikla fátækt.“
Bjarni var með myndavélina tiltæka hvert sem hann fór og myndaði í gríð og erg þannig að mörg listaverkin eru komin úr framköllun. „Ég lagði áherslu á að grípa augnablik hvers og eins og kynnast því hvernig fólk lifir í svona þjóðfélagi. Ljósmyndirnar eiga það sameiginlegt að fanga blákaldan veruleikann og daglegt líf í Nepal.

Ferðin gaf mér ný og spennandi ævintýri á hverjum degi og þetta er í annað sinn sem ég kem til Asíu. Það sannaði sig svo hvað það er mikil upplifun að koma á svona stað. Það er ekki hægt að bera þetta saman við til dæmis Evrópu hvað varðar náttúruna, fegurðina og fólkið – svo maður tali ekki um veðrið.“

Share



01. apríl 2008| Vetur konungur

28. maí 2007| Sunnan við sólina

18. desember 2006| Margur er Kínverjinn


10. júlí 2006| Ævintýralandið Panama

06. júlí 2006| Í fótspor Davíðs skálds

06. júlí 2006| Á Kilimanjaro



STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is