leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


ÍÞRÓTTIR
19/05/2008 | 11:00

Á bólakafi í sundinu: Sunddrottningin Ragnheiður Ragnarsdóttir

Hin 23 ára Ragnheiður Ragnarsdóttir er afrekssundkona. Frá barnsaldri lagði hún stund á fótbolta, körfubolta, frjálsar íþróttir og fleiri greinar en það var loks sundið sem fangaði huga hennar. Sunddrottning okkar Íslendinga hefur markvisst lagt stund á sundið síðan hún var sjö ára gömul.

Ragnheiður er Garðbæingur og æfði því fyrst um sinn á heimaslóðum hjá Stjörnunni en til gamans má geta þess að hún var einmitt kjörinn íþróttamaður Garðabæjar í hitteðfyrra. Leið hennar lá síðan yfir í SH (Sundfélag Hafnarfjarðar) með viðkomu i Breiðabliki. Sextán ára hélt hún svo hugrökk í víking vestur um haf þar sem hún stundaði nám og æfði sund af kappi í Bandaríkjunum.

Ragnheiður geislaði af fegurð og hreysti þegar blaðamaður Skýja mælti sér mót við hana á kaffihúsi í miðbænum.

Texti: Hrund Hauksdóttir. Mynd: Geir Ólafsson.

 

Hvers vegna fórstu til náms og æfinga í Bandaríkjunum?

„Ég hafði mikinn áhuga á að prófa að vera í annars konar umhverfi og hitta nýja þjálfara. Ég fór ekki hina hefðbundnu skiptinemaleið heldur kaus ég fremur að fara sem sundmaður og bjó hjá fjölskyldu sem átti stelpu sem var líka að æfa sund. Ég fór til Kaliforníu og dvaldi í bænum Mission Viejo þar sem ég æfði stíft með háskólaliði. Þetta var hressandi tilbreyting frá því að vera hér heima þar sem óhjákvæmilega fer að kólna þegar sumrinu lýkur og maður nennir síður að vakna til að skella sér í laugina með gæsahúð í myrkrinu. Það er mjög gott að stunda sundið í hitanum og viðhalda því formi sem maður er í og svo hef ég eignast marga vini á þessum slóðum, sem er ómetanlegt.“

Hvað ertu að fást við um þessar mundir?

,,Framundan eru miklar æfingar fyrir ólympíuleikana en aðeins örfáir mánuðir eru í að leikarnir hefjist og síðasta æfingatörnin fyrir þá er að hefjast. Ég var á Evrópumeistaramótinu í mars og eftir þá var smávegis hvíld og ekki eins erfiðar æfingar. Í sumar taka við æfingabúðir erlendis og svo beint til Kína á leikana í kjölfarið.

Ég fæ nú ekki mikið sumarfrí þar sem ég verð á fullu í allt sumar að æfa og undirbúa mig fyrir ólympíuleikana. En ég fæ frí eftir að þeim lýkur og ætla að skoða mig aðeins um í Kína. Svo tek ég sumarfríið mitt út í september og er að hugsa um að skreppa í smáslökun til útlanda með kærastanum mínum. Það er alltaf gaman að fara til útlanda og þurfa ekki að taka með sér sundhettu og sundgleraugu! Þá slakar maður virkilega vel á og nýtur lífsins.“

Ragnheiður ber sérlega fallegt prjónaverk um úlnliðina. Geislandi bros færist yfir andlit hennar þegar hún er innt eftir hvar slíkir dýrgripir fáist:

„Það get ég svo sannarlega sagt þér. Ég hef að sjálfsögðu fleiri áhugamál en sundið og eyði ekki öllum tíma mínum ofan í lauginni. Ég tók stúdentspróf af listnámsbraut í FG því ég hef mikinn áhuga á kvikmyndagerð, hönnun og öllu sem að þeim efnum lýtur. Ég hef unnið svolítið við auglýsingagerð sem er mjög gaman. Einnig hef ég unnið talsvert við hönnun með ömmu minni, Margréti Árnadóttur, sem er fatahönnuður og er með fyrirtækið M design. Fyrir nokkrum árum teiknaði ég þessi úlnliðsbönd og við amma kýldum bara á að framleiða þau. Hönnunin er seld í öllum helstu minjagripa- og ferðamannaverslunum.“

Hugsar íþróttakonan mikið um mataræðið?

„Já, ég spái vandlega í næringu og er á sérstöku mataræði sem byggist á ákveðnu magni af próteinum, kolvetni og fitu á dag. Ég sleppi svo vissum fæðutegundum eins og pasta og brauði sem er kannski ekki mjög algengt hjá íþróttamönnum en hefur virkað vel fyrir mig. Ég fæ kolvetnin í staðinn úr ávöxtum, grænmeti og öðru. Ég tek ekki mikið af fæðubótaefnum en legg áherslu á helstu vítamín og steinefni. Ég reyki ekki og drekk ekki og lifi heilsusamlegu lífi. Ég tek á mataræðinu af alvöru og það er í nokkuð föstum skorðum en auðvitað bregð ég stöku sinnum út af mynstrinu til hátíðabrigða, t.d. í sumarleyfum. Uppáhaldsgóðgætið mitt er jólamaturinn hennar mömmu: Rækjurönd í forrétt, hamborgarhryggur í aðalrétt og toblerónís í eftirrétt. Líklega er magnið sem ég borða á aðfangadag álíka mikið og það sem ég læt ofan í mig allt árið! Svo reyni ég líka alltaf að vakna fyrst allra á jóladag til þess að komast í afgangana og held þá áfram að borða allan daginn. Annars finnst mér humar líka mjög góður og uppáhaldsveitingastaðurinn minn er Fjöruborðið á Stokkseyri.“

Hver er helsta fyrirmynd þín í heimi afburða íþróttamanna?

,,Ég hef lesið mikið um hjólreiðamanninn Lance Armstrong og finnst alveg frábært hvernig hann hugsar og lifir lífi sínu. Hans hugmyndir og lífstíll er ótrúlegur innblástur fyrir þá sem eru eða vilja vera alvöru íþróttamenn. Ég mæli sérstaklega með bókinni hans It´s Not About The Bike en hún fjallar um feril Armstrongs og veikindi. Það tók mig um það bil ár að lesa hana, ekki vegna þess að ég væri löt heldur einfaldlega vegna þess að ég tímdi ekki að klára hana. Vinur minn, sem þekkir Lance Armstrong persónulega, sagði honum víst frá þessu og að hans sögn var Lance alveg ólmur í að hitta mig og ræða íþróttir og afreksplön. Ennþá hefur ekki orðið af því en það væri algjör draumur að fá að hitta meistarann og spjalla við hann um lífið og tilveruna. Hann er mikil hvatning að mínu mati.

Í sundinu hef ég kynnst þeim bestu af báðum kynjum í gegnum keppnir, æfingaferðir og stórmót. Það er mjög gefandi og „inspírandi“ að spjalla við heimsmeistara og bera saman bækur sínar. Ég á t.d. einn mjög góðan erlendan vin sem er á toppnum í sinni grein og við tölum saman á hverjum degi. Hann syndir tvisvar sinnum meira en ég og þó er ég á kafi í þessu. Hann kafar enn dýpra. Hann kemur ekki upp úr lauginni!“
Lumarðu á góðum ráðum til ungra aðdáenda þinna sem eru metnaðarfullir í sundiðkun og vilja ná langt?

,,Það er alltaf vænlegast til árangurs að hafa gaman af því sem fengist er við, hvort sem það er sundiðkun eða eitthvað annað. Það þarf að setja sér skýr markmið og stefna að þeim með brosi á vör. Markmiðasetning skilar litlum árangri ef ánægja er ekki með í spilunum. Að sjálfsögðu er maður stundum þreyttur og latur og skapið ekki upp á sitt besta. Ef ég er illa upplögð fyrir æfingar reynist mér best að hlusta á skemmtilega tónlist, spjalla við krakkana sem ég er að æfa með og reyna með öllum ráðum að komast í gott skap. Þá ganga æfingarnar mun betur og uppskeran verður í samræmi við það.“

Hvernig skilgreinir þú ást?

„Ég gæti reynt að skilgreina ást á marga vegu. Ég elska til dæmis fjölskyldu mína og vini. Ef ég ætti að skilgreina ást á einn hátt myndi ég segja: Mamma og pabbi. Þau eru búin að vera saman síðan þau voru táningar og enn í dag leiðast þau og haga sér eins og kærustupar.“

Hvernig er rómantísk kvöldstund að þínu mati?

„Þær geta verið mjög mismunandi; allt frá því að borða góðan mat og hafa það notalegt til þess að fara í gönguferð á ströndinni með brimbrettin undir handleggnum. En mikilvægast er að láta sér líða vel. Það er ekkert sem drepur rómantíkina meira niður en að vera í of þröngum gallabuxum og líða illa eða vandræðalega og hafa ekkert til að tala um. Helst myndi ég kjósa að borða góðan mat og eiga góðar samræður, þannig líður mér vel. Ég held hins vegar að lykillinn að því að viðhalda rómantíkinni í daglega lífinu sé að hugsa jafn vel um maka sinn og maður hugsar um sjálfan sig. Það þýðir að setja vilja og þarfir makans ofar sínum eigin stöku sinnum og láta sig hafa það að horfa á heilan fótboltaleik án þess að kvarta!“

Hefur svona mikil vera ofan í sundlaugum slæm áhrif á húðina?

„Nei, svo furðulega sem það kann að hljóma að þá verð ég frekar slæm í húðinni ef ég tek frí frá sundinu. Fólk kvartar gjarnan undan því að húðin verði þurr eftir klórinn og hárið grænleitt en ég kannast ekkert við það.“

Þú hlaust nýlega styrk frá N1. Hvaða þýðingu hefur hann fyrir þig?

,,Ég er mjög þakklát fyrir þann styrk sem ég hef fengið frá N1. Það er að sjálfsögðu ekkert grín að vera á fullu í íþróttum og geta ekki unnið almennilega fyrir öllum nauðsynlegum útgjöldum eins og t.d. bensíni. Styrkurinn gerir mér kleift að einbeita mér mun betur að æfingunum og markmiðum mínum, í stað þess að vinna meira.“


Hvar kaupir þú helst föt og hvernig er fatasmekkur þinn?

„Ég hef smekk fyrir þægilegum og venjulegum fötum. Gallabuxur og hettupeysa er það sem ég fer oftast í á æfingar eða er heima við en þegar ég klæði mig upp finnst mér gaman að fara í aðeins fínni föt og flotta skó. Ég er með svolitla skódellu og háir hælar og flott stígvél eru í uppáhaldi hjá mér. Ég versla lítið hérna heima vegna þess að ég ferðast svo mikið. Ég dett stundum í verslunargírinn og kaupi þá bara það sem mér þykir flott og langar í. Ég hef verslað mikið i H&M, Abercrombie and Fitch og svo hinum og þessum búðum sem ég veit af eða finn. Ég lærði líka fatahönnun í FG og hanna stundum föt á sjálfa mig. Amma mín er líka fatahönnuður, eins og við komum að áðan, og ég hef gaman af því að hjálpa henni við að finna hugmyndir að flíkum og útsetja þær skemmtilega.“

Er best að búa á Íslandi eða geturðu hugsað þér að búa erlendis?

„Mér finnst Ísland að sjálfsögðu besti staður í heiminum en ég viðurkenni  fúslega að ef ég er of lengi hérna í einu, sérstaklega yfir vetramánuðina, þá fer ég að þrá sól og hita. Ég hef reynslu af að búa í Kaliforníu og vera þar við æfingar og ég gæti vel hugsað mér að eiga heima þar. En þó ekki til lengri tíma því að það er alltaf best að vera heima á Íslandi. Mig hefur einnig langað að flytja til Hawaii eða Suður-Afríku þar sem ég gæti verið á brimbrettum allan daginn og sólað mig. Annars er það frekar fjarlægur draumur þar sem raunveruleikinn krefst meira af manni í augnablikinu. Barcelona, London og New York eru einnig meðal minna uppáhaldsstaða og ef ég hefði tilefni til að flytja til einhverra af þessum borgum myndi ég ekki hika við það,“ segir hin glaðbeitta afrekskona að lokum.

Share








STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is