
Það geislar af dansparinu Sigurði Má Atlasyni og Söru Rós Jakobsdóttur en þrátt fyrir ungan aldur hafa þau náð mjög góðum árangri í danskeppnum hér heima og erlendis. Það var fyrir einskæra tilviljun að þau byrjuðu að dansa saman fyrir átta árum og enn láta þau dansinn duna saman jafnvel þó að óalgengt sé í dansheiminum að eiga sama félagann svo lengi. En þau stefna lengra og hærra svo samstarfið er einungis rétt að byrja.
Texti: Erla Gunnarsdóttir. Mynd: Geir Ólafsson.
Þeir sem til þekkja segja þau bæði ákaflega samviskusöm og dugleg að stunda dansinn, enda fátt annað sem kemst að hjá þeim en æfingar og aftur æfingar. Því liggur beinast við að spyrja hvernig þetta byrjaði allt saman hjá þeim.
„Ég byrjaði þegar ég var sex ára gamall. Aðalástæðan fyrir því að ég byrjaði er sú að stjúpmóðir mín, Auður Haraldsdóttir, er danskennari og hún vildi að ég prófaði dansíþróttina og sæi hvernig mér fyndist og hef ég bara æft dans síðan,“ útskýrir Sigurður Már og Sara Rós segir jafnframt;
„Þegar ég var sex ára gömul byrjaði ég að æfa ballett og gerði það í eitt ár. Síðan fannst mömmu kennslugjöldin vera orðin of há svo hún fann eitthvað annað handa mér og það var samkvæmisdans. Fyndið að segja frá því vegna þess að kostnaðurinn núna er margfalt hærri en kennslugjöldin í ballettinum voru!“
Vináttan skiptir meginmáli
Þau Sigurður Már og Sara Rós fundu fljótlega að dansinn átti vel við þau en í kjölfar þess að dansfélagi Sigurðar Más forfallaðist eitt sinn fóru þau tvö að dansa saman og þá varð ekki aftur snúið.
„Það mætti vel segja að við náum mjög vel saman. Við höfum dansað saman í átta ár svo við erum einnig orðin mjög góðir vinir. Það er allavega ekki algengt að danspör endist svona lengi,“ segir Sara Rós brosandi og Sigurður Már bætir við; „Við vorum sjö og átta ára gömul þegar við byrjuðum að dansa saman og það er mjög sjaldgæft í dansheiminum að dansa svo lengi við sama einstaklinginn. Ég held að vináttan skipti hér meginmáli.“
Sigurður Már og Sara Rós dansa alla tíu samkvæmisdansana sem samanstendur af fimm Ballroom-dönsum; enskum vals, tangó, vínarvals, foxtrot og quickstep, og fimm Latin-dönsum; sömbu, cha cha cha, rúmbu, paso doble og jive.
„Við dönsum alla þessa tíu dansa sem flokkast undir Standard og Latin en sumir kjósa að einbeita sér einungis að öðrum flokknum. Yfirleitt höfum við verið sterkari í Latin-dönsunum en Standard-dansarnir eru orðnir betri en áður hjá okkur,“ útskýrir Sara Rós.
Sætir sigrar
Sem fyrr sagði hefur dansparið unnið til fjölda verðlauna fyrir frammistöðu sína á dansgólfinu. Í byrjendaflokki voru þau yfirleitt í úrslitum en náðu aldrei hærra en 5. og 6. sæti. Fyrsta gullið þeirra var síðan í höfn eftir Lottó-keppnina svokölluðu í nóvember árið 2002 í Latin-dönsum.
„Eftir Lottó-keppnina fór þetta allt upp á við og það má segja að við höfum unnið mest allt eftir það. Í framhaldinu náðum við 2. sæti á London Open árið 2003 sem var mjög skemmtilegt og fyrsti sigurinn okkar í útlöndum. Það sem stendur þó upp úr hingað til er þegar við náðum 1. sæti í Latin-dönsum á Copenhagen Open árið 2007 og 2. sæti í tíu samkvæmisdönsum á sama móti,“ segir Sigurður Már og Sara Rós samsinnir félaga sínum yfir mikilvægi þessara glæstu sigra en bætir við: „Einn af eftirminnilegustu sigrunum að mínu mati var samt á bikarmeistaramótinu árið 2005 þegar við unnum Standard-dansana eftir bráðabana milli tveggja para. Þá var orðið frekar langt síðan við fengum fyrsta sætið og því var sigurinn sætur.“
Mikilvægt að hafa gott sjálfstraust
Sem fyrr sagði á dansinn hug þeirra allan en að sögn Söru Rósar fer allur peningur, áhugi og metnaður þeirra í dansiðkunina. Sigurður Már hefur þó gaman af að leika sér í golfi á sumrin þegar tími gefst til.
„Þegar maður er kominn á kaf í dansheiminn er ekki aftur snúið. Fyrir mér er dans ekki bara íþrótt heldur líka list, það er svo rosalega mikil vinna á bak við þetta. Það er til dæmis mikið meiri skemmtun í að horfa á dans heldur en margar aðrar íþróttir. Þannig orða margir utanaðkomandi þetta oft því það er svo mikill klassi yfir þessu,“ útskýrir Sara Rós þegar hún er spurð hvað sé svona heillandi við dansinn. Sigurður Már hlustar athugull á og segir jafnframt: „Ég myndi segja að það væri allur félagsskapurinn, keppnisferðirnar og keppnirnar, hreyfingin og tilfinningin að vinna sem gerir þetta svo skemmtilegt.“
Þau stefna hátt á dansgólfinu og er Sigurður Már svo brattur að nefna jafnvel heimsmeistaratitil á meðan Sara Rós einblínir á næstu verkefni, þar á meðal Íslandsmeistaramótið þar sem þau munu án efa keppa til sigurs.
„Ég ætla mér að ná langt í framtíðinni en það verður mikil barátta um Íslandsmeistaratitilinn því við erum komin upp í nýjan flokk,“ útskýrir Sara Rós glöð í bragði og blaðamanni verður ljóst hversu mikilvægt sjálfstraustið er þessum ungu og bráðefnilegu dönsurum, enda kemur það á daginn í lok samtalsins þegar þau eru innt eftir því hvað maður þurfi að bera til að verða góður dansari:
„Maður þarf að vera nokkuð opinn, með góðan takt, snerpu, úthald og útgeislun á dansgólfinu að mínu mati,“ segir Sigurður Már og Sara Rós segir jafnframt; „Það sem mér finnst mikilvægast er gott sjálfstraust og sjálfsagi og auðvitað að geta notið dansins því þá getur maður allt sem maður ætlar sér.“
Nafn: Sara Rós Jakobsdóttir.
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Áhugamál: Aðallega dans, hitta vini mína, skemmta mér og njóta lífsins.
Gæludýr: Ekkert nema litlu systkini mín, ha ha.
Uppáhaldsmatur: Mér finnst mjög gaman að borða góðan mat, ég er alls ekki matvönd. Ég held reyndar að það sé bara sparimaturinn hjá ömmu, lambalæri með brúnuðum kartöflum og meðlæti.
Uppáhaldsdrykkur: Íslenska vatnið er best.
Uppáhaldsdansari: Yulia Zagoruychenko.
Mottó: Viljinn er allt sem þarf.
Nafn: Sigurður Már Atlason.
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Áhugamál: Dans, golf, fótbolti og að vera með vinum mínum.
Gæludýr: Hundurinn Snót.
Uppáhaldsmatur: Mér finnst bara næstum allur matur góður en ég verð samt að segja að maturinn hennar ömmu toppi allt.
Uppáhaldsdrykkur: Vatnið klikkar aldrei.
Uppáhaldsdansari: Slavik Kryklyvyy í Latin-dönsum og Mirko Gozzoli í Ballroom-dönsum.
Mottó: Hver er sinnar gæfu smiður og æfingin skapar meistarann.