
verkefnin oftar en ekki upp og þar með lántakendurnir. Þetta varð til þess að byggðastefna fékk í hugum manna á sig óorð spillingar og óráðsíu. Á síðari árum hefur þetta breyst þannig að menn hafa fyrst og fremst viljað byggja upp atvinnustarfsemi á þeim stöðum þar sem það hentar vel vegna aðstæðna. Mörgum landsbyggðarmanninum lá illt orð til Reykjavíkur sem dró að sér vald, peninga og fólk. Svo rammt kvað að þessu að Vegagerðin þorði varla að setja höfuðborgina á vegaskilti. Útlendingar sem óku um landið á þessum tíma töldu flestir að Borgarnes væri höfuðborg landsins vegna þess að þaðan virtust allar vegalengdir vera reiknaðar.