leita


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


LEIÐARI
05/10/2007 | 17:43

Eru há laun hættuleg?

Margir velta því fyrir sér hvort nokkurt vit sé í því að einn maður fái tugi milljóna í laun á mánuði. Stundum einkennist umtalið af öfund, stundum af pólitík. En er það vont fyrir samfélagið að einhverjir fái mjög há laun? Þeir sem hæstu launin hafa borga líka hæstu skattana. Þannig leggja þeir líka mikið í samneyslu. Hæsti skattgreiðandi landsins vegna ársins 2006 er Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings. Hann greiðir um 400 milljónir til samfélagsins. Það er ástæða til þess að óska Hreiðari til hamingju með þennan árangur. Miklar tekjur hans endurspegla góðan árangur Kaupþings innan lands og utan. Það er gleðiefni að sjá hve fyrirtækið hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum. Auk þess er það ánægjulegt að sjá að hve þessi forystumaður í atvinnulífinu leggur myndarlegan skerf til samfélagins. Fyrir þessa fjárhæð má reka embætti umboðsmanns barna, Þjóðmenningarhúsið, Minningarsafn um Halldór Laxness á Gljúfrasteini, fasteignir forsætisráðuneytisins, Vest-Norrænt menningarhús í Kaupmannahöfn, Óbyggðanefnd, Ríkislögmann og þjóðgarðinn á Þingvöllum.

Í stað þess að agnúast út í há laun er miklu meiri ástæða til þess að þakka þeim einstaklingum sem ákveða að halda búsetu hér á landi og leggja myndarlegan skerf til uppbyggingar hér á landi þó að þeim væri eflaust í lófa lagið að fela sig í einhverri skattaparadís. Það var ótrúleg bíræfni þegar þekktur viðskiptajöfur sagðist hafa flutt til útlanda vegna þess að skólakerfið væri ekki nógu gott á Íslandi. Hvað skyldi hann sjálfur hafa lagt til þess kerfis? Ekki krónu í tekjuskatt því að hann reiknaði sér ekki nema örfáa tugi þúsunda í laun.

Nú á tímum er það nefnilega svo að það eru ekki bara einstök byggðarlög sem vilja halda í einstaklingana, þjóðfélagið allt á í ákafri samkeppni við umheiminn um hæfustu einstaklingana. Það geta verið margar ástæður fyrir því að menn setjast að erlendis. Íslendingar keppa ekki um veður við Miðjarðarhafslönd. En við getum keppt með hagstæðu skattaumhverfi, fjölbreyttri menningu og traustum heilbrigðis- og menntakerfum. Þeir sem fá há laun stuðla að góðu umhverfi hér á landi með háum skattgreiðslum.

Ef allir þeir sem bestar hafa tekjurnar hrekjast úr landi eða fela launin í eignarhaldsfélögum tapar íslenskt samfélag. Tekjuskiptingin verður jafnari, en tekjurnar í heild verða miklu minni. Líður einhverjum betur við það?

Benedikt Jóhannesson

Share



05. október 2007| Eru há laun hættuleg?

28. maí 2007| Allir ósammála

27. febrúar 2007| Hverjir eru bestir?

14. desember 2006| Skemmtilegt er myrkrið

07. júlí 2006| Besta byggðastefnan?

05. júlí 2006| Mestir,bestir,minnstir


STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is