
Þjóðin er varla búin að jafna sig ennþá eftir æsi spennandi handboltaleik Íslendinga og Dana. Einhverjir eiga eftir að upplifa síðustu mínútuna aftur og aftur.
Það græðist þó lítið á því að hugsa hvað hefði getað gerst. Hitt er mikilvægara að íslenska liðið sýndi að á góðum degi stendur það jafnfætis bestu liðum í heimi.
Í Skýjum veltum við oft fyrir okkur Íslendingum sem hafa unnið sérstæð afrek. Sumir í listum, aðrir í íþróttum og ekki má gleyma stjórnmálamönnum sem oft fá skammir en vinna sitt verk undir smásjá fjölmiðla og almennings. Allir skapa söguna með verkum sínum.
Það er auðvelt að vera gagnrýninn á aðra og mjög oft á það vel við. Listamenn sem fara ótroðnar slóðir eru oftar en ekki fordæmdir af sinni samtíð.
Íþróttamönnum er hampað þegar þeir koma heim með verðlaunapeninga en fáir muna þá sem bara „tóku þátt“. Þeir stjórnmálamenn sem njóta einróma aðdáunar um sinn eru oft fordæmdir síðar.
Það er erfitt að gera svo öllum líki. Eftir á að hyggja er meira spunnið í marga en menn sáu þegar þeir voru og hétu.
Einn þeirra sem var hetja meðan hann var á lífi og er það enn er Jón Páll Sigmarsson. Yfir honum var glaðværð og hann vann ótrúleg afrek á mörgum sviðum.
Hann var íþróttamaður ársins og gerði sér lítið fyrir að vinna bæði vaxtarræktarkeppni Íslands og titilinn Sterkasti maður heims sama árið.
Á gerólíkum sviðum var hann bestur. Jafnvel þó að við vitum nú að hann neytti lyfja sem ekki eru leyfileg minnkar það lítið hetjuljómann. Hann naut aðdáunar barna og fullorðinna.
Dagur Sigurðarson var allt öðruvísi maður. Margir muna eftir honum á götum borgarinnar. Á myndunum sem fylgja greininni um hann sjáum við að hann var myndarlegur maður og hann var efnilegur listamaður en afar umdeildur.
En sitt er hvað, gæfa og gjörvileiki og hann féll frá árið 1994 án þess að hafa uppfyllt þær vonir sem við hann voru bundnar. Þó að hann hafi að mörgu leyti verið utanveltu eigum við samt að halda minningu hans á lofti því að lífið var litríkara meðan hans naut við.
Til þess að undirstrika enn frekar hve margir hafa gert Ísland það sem það er núna birtum við sérstaka grein um hetjur af ýmsu tagi. Þau eru ekki hetjur eins og Egill Skallagrímsson eða Jón Páll.
Ekki einu sinni allt frægt fólk. Samt hetjur, sumir í bráð, aðrir í lengd. Meðal annars þeirra vegna erum við eins og við erum í dag. Þess vegna finnst okkur við best.
Benedikt Jóhannesson