
einhverja merkingu, hvernig á að bera saman ólíka bækur frá ólíkum tímum? Eiga bækur úr fortíðinni erindi við okkur nútímafólkið? Svar þeirra sérfræðinga sem við báðum að leggja okkur lið var skýrt. Já, það eru margar bækur sem eru orðnar um 800 ára gamlar eða eldri sem allir Íslendingar ættu að lesa. Það er gaman að sjá hvernig nútíminn (því að við teljum Halldór Laxness til nútímans þó að hann sé látinn) kallast á við fornöldina á listunum. Eflaust eru Snorri og Halldór mestu rithöfundar Íslandssögunnar, en það eru miklu fleiri sem öllum ber að kynna sér. Alls eru hér taldar þrjátíu úrvalsbækur, fornbókmenntir, ljóð og bækur frá síðari öldum sem sérhver vel menntaður Íslendingur ætti að hafa lesið. Lesendur geta leikið sér að því að velja sjálfir sínar uppáhaldsbækur og vonandi eru þeir ekki sammála öllu því sem hér kemur fram. En þó var merkilega góður samhljómur um bestu bækurnar í hverjum flokki um sig. Ánægjulegasta niðurstaðan er auðvitað sú hve margar góðar bækur hafa verið skrifaðar á íslensku.