leita


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


LEIÐARI
26/03/2008 | 16:36

Virðing stjórnmálamanna

Það getur verið erfitt að vera í sviðsljósinu. Stjórnmálamenn verða oft fyrir óvæginni umfjöllun en það á við um marga aðra sem eru vel þekktir. Listamenn eru stöðugt að leggja verk sín í dóm almennings og íþróttamenn í fremstu röð þurfa sífellt að standa undir væntingum sem ekki eru alltaf raunhæfar. Íslendingar ætlast til mikils af sínum mönnum. Margt ungt fólk sem hefur keppst við að verða frægt er fljótt að fá sér leynisímanúmer. Og ekki bara vegna þess að það er töff að geta sagst vera með óskráð númer.

Stundum á almenningur rétt á því að gera kröfur. Fólk sem hefur markvisst klifrað upp á við á sínu sviði getur ekki búist við því að geta brugðið yfir sig huliðshjálmi þegar slíkt hentar. Stjórnmálamenn eru kannski þeir aðilar sem eru helst í eldlínunni allan sólarhringinn, árum og áratugum saman. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra vék að þessu á heimasíðu sinni 18. febrúar síðastliðinn þegar hann skrifaði: „Aðgát skal höfð í nærveru viðkvæmra sálna.“ Össur kemur þarna með þarfa brýningu. Það er svo sannarlega ekki ástæða til þess að sparka í stjórnmálamenn eða aðra þegar þeir hafa ekkert til saka unnið annað en vinna sitt starf. Hins vegar geta þeir sem kosnir eru til ábyrgðar ekki búist við því að Alþingi eða borgarstjórn sé eins og verndaður vinnustaður þegar mikil átök eru og sviptingar.

Oftast hafa stjórnmálamenn sem efnt hafa til stjórnarsamstarfs reynt að leysa úr ágreiningi sín á milli án þess að til stjórnarslita kæmi. Frá árinu 1983 hefur ríkisstjórnarsamstarfi aðeins einu sinni verið slitið (árið 1988 þegar Jón Baldvin og Steingrímur sögðu skilið við Þorstein Pálsson). Borgarstjórnarsamstarfi hafði aldrei verið slitið fyrr en haustið 2007. Oft hefur auðvitað hrikt í þegar einstaklingar með ólíkar skoðanir vinna saman en oftast hafa þeir náð lendingu sem ekki hefur ratað á spjöld sögunnar. Það er hollt fyrir þjóðarsálina þegar stjórnmálamenn hafa þann þroska að setja stöðugleika ofar eiginhagsmunum.

Staðreyndin er nefnilega sú að í hvert skipti sem stjórnmálamenn sparka með ófyrirleitnum hætti hver í annan setur stjórnmálin niður þó að einstaka æstur stuðningsmaður klappi sínum manni lof í lófa. Slíkt klapp endist yfirleitt ekki lengi.

Benedikt Jóhannesson

Share



05. október 2007| Eru há laun hættuleg?

28. maí 2007| Allir ósammála

27. febrúar 2007| Hverjir eru bestir?

14. desember 2006| Skemmtilegt er myrkrið

07. júlí 2006| Besta byggðastefnan?

05. júlí 2006| Mestir,bestir,minnstir


STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is