leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


STJÓRNMÁL
07/07/2006 | 12:47

Áhugamál forsætisráðherra

Eiga forsætisráðherrar tómstundir? Hvað gera þeir, þá sjaldan þeir eiga frí?
Fjölhæft og framkvæmdaglatt fólk á yfirleitt nóg af áhugamálum, það vantar frekar tíma til að sinna þeim. Forsætisráðherrar Íslands hafa gegn um tíðina haft nóg að sýsla, en flestir þeirra hafa þó átt sín áhugamál og sinnt þeim eftir því sem tími og tækifæri hafa leyft.


Halldór Ásgrímsson - fjallagarpur (2004 –) 
Halldór Ásgrímsson, núverandi forsætisráðherra Íslands, er einn af þeim mönnum sem við sjá um eða heyrum daglega í fjölmiðlum og fólk hefur á tilfinningunni að hann hafi vart tíma til að sofa og þaðan af síður að gera sér eitthvað til skemmtunar. Halldór er samt mikið náttúrubarn og göngugarpur og notar hvert tækifæri sem hann sleppur úr augsýn fjölmiðla til að ganga á fjöll. Hann ku hafa gengið á fjöll innan lands sem utan, meðal annars á Hvannadalshnjúk og hæsta fjall Spánar. Hann segist einnig bregða undir sig skíðun um á vetrum þegar vel viðrar. Þá sést alltaf reglulega til Halldórs í líkamsrækt þar sem hann svitnar með almúganum í Reykjavík og þykir frískur og feikiduglegur í púlinu. Halldór er líka mikill stuðbolti í góðra vinahópi og á gott með að koma öðrum til að brosa án þess að Pálmi Gestsson komi þar nokkuð við sögu.

Davíð Oddsson - bridge og ritstörf (1991 –2004)
Forveri og samstarfsmaður Halldórs, Davíð Oddsson, er einn af þeim mönnum sem kemur ótrúlega miklu í verk. Hann hefur ekki látið sig muna um að stjórna landinu harðri hendi og sinna þar að auki mörgum og margvíslegum áhugamálum sínum. Davíð átti lengi hinn fræga hund Tanna sem hann fór með í gönguferðir um nágrennið og samskipti þeirra félaga voru oft viðfangsefni fjölmiðla. Tanni er nú fallinn frá og Davíð hundlaus maður og hefur snúið sér að öðrum áhugamálum, en af nógu er að taka. Davíð hefur gaman af að spila bridge og renna fyrir lax, en landsmenn fylgdust með töktum hans við árbakkann í sjónvarpi meðan hann var borgarstjóri Reykjavíkur. Hann er líka liðtækur í garðyrkju og skógrækt og herma sögur að oft sjáist til hans moldugs upp fyrir haus við hreinsun og plöntun á heimaslóðum, bæði í Reykjavík og sumarbústað sínum. Á yngri árum var Davíð mjög áhugasamur um leiklist og sló meðal annars í gegn í hlutverki Bubba kóngs á námsárum sínum í MR. Davíð er þó frægastur fyrir ritstörf sín sem hann stundaði að mestu leyti í kyrrð og friði í sumarhúsi sínu. Hann hefur skrifað þrjú leikrit sem sett hafa verið á fjalirnar og gert fjölda útvarpsþátta, en það þekktasta sem úr penna Davíðs hefur komið eru bókin Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar og ljóðið Reykjavíkurborg sem margir landsmenn kannast við í flutningi Egils Ólafssonar.

Steingrímur Hermannsson smiður og náttúrubarn (1983 –1987, 1988 –1991)
Steingrímur er þekktur fyrir áhuga sinn á umhverfismálum, en sá áhugi hefur alltaf skinið í gegn um leik hans og starf. Eins og aðrir með svipuð áhugamál er hann mikill útivistarmaður og ferðalangur að eðlisfari og hann hefur meðal annars stundað laxveiði, skíði og golf og plantað trjám af atorku. Hann var hundeigandi eins og Davíð og hundurinn Nonni var einn af þekktari karakterum landsins af því kyni, enda birtust nokkrum sinnum myndir af þeim félögum saman í blöðum. Nonni er nú allur fyrir nokkru og annar hundur hefur ekki komið í stað hans svo vitað sé. Steingrímur á líka annað áhugamál sem hann sinnti af innlifun, en það eru
smíðar. Oft hefur smíðamennska Steingríms verið höfð í flimtingum þar sem hann sagaði eitt sinn framan af fingri og varað eigin sögn aldrei „med fulde fem” eftir það. En hann lætur það ekki aftra sér og heldur ótrauður áfram að smíða. Kunnugir segja að eftir hann liggi margir eigulegir hlutir, stórir sem smáir.

Jóhann Hafstein - hestamaður (1970 –1971) 
Jóhann var einn hinna fjölmörgu Íslendinga sem taka ástfóstri við íslenska hestinn. Þeir sem þekktu hann segja að hann hafi sinnt hestunum vel og verið einkar natinn, kembt og strokið og gefið þeim góðan tíma. Hann hafði mikla ánægju af útivist og sameinaði þessar ástríður sínar í að fara í útreiðartúra ýmist einn eða í hópi vina. Eins og margir aðrir sem fá hestadelluna átti hún huga Jóhanns allan utan vinnutíma þótt eftir hann liggi talsvert af greinum því hann greip líka til pennans í frístundum.

Þorsteinn Pálsson - bókaunnandi (1987 –1988) Þorsteinn Pálsson hefur aldrei verið frægur af áhugamálum sínum, en að sögn kunnugra er hann mikill ljóðaunnandi. Hann er feikilegur lestrarhestur og hefur mest gaman af ljóðabókum og sagnfræði. Þorsteinn á sumarbústað á Flúðum þar sem hann dvelur talsvert og nýtur frístunda sinna og frést hefur af honum spila golf annað slagið þar fyrir austan.

Ólafur Jóhannesson - fræðimaður (1971 –1974, 1978 –1979) Ólafur var fræðimaður fram í fingurgóma og hjá honum komst fátt annað að. Hann notaði flestar allar sínar frístundir til skrifta (ef frístundir skyldi kalla) og skrifaði fjölda kennslu- og fræðibóka um lögfræði. Hann hafði þó mikið yndi af ferðalög um innan lands og setti sig aldrei úr færi að ganga úti í náttúrunni þegar hann hafði tækifæri til. Það var kímniglampi í augum Ólafs þótt hann væri alvarlegur á yfirborðinu og hann var alltaf til í glens og grín í góðum hópi.

Bjarni Benediktssson - rithöfundur á röltinu (1963 –1970)
Bjarni Ben, eins og hann var jafnan kallaður, var göngugarpur eins og Halldór Ásgrímsson, en Bjarni fór sínar gönguferðir meira sér til andlegrar upplyftingar en til þess að takast á við fjöll og púla. Hann sást oft á gangi í Reykjavíkurborg og þá ekki síst að kvöldlagi. Hann unni íslenskri náttúru og notaði mikið sumarbústað ríkisins á Þingvöllum þar sem hann dvaldi sér til hvíldar og endurnýjunar. Hann hafði líka gaman af kvikmyndum og margir sem komnir eru af léttasta skeiði muna eftir honum úr bíósölunum og þá ekki hvað síst ef gamanmyndir voru á tjaldinu. Sagt er að hann hafi þá hlegið mikið sem kom mörgum á óvart sem þekktu hann ekki af öðru en pólitíkinni.
Þekktastur var þó Bjarni fyrir ritstörf sín, en eftir hann liggja margar greinar og ræður. Margar þeirra er að finna í safninu Land og lýðveldi, sem kom út í þrem bindum.


Geir Hallgrímsson - laxveiðimaður (1974 –1978)


Geir átti fá áhugamál önnur en pólitík. Á meðan hann var borgarstjóri smitaðist hann af laxveiðiáhuga, en eins og kunnugt er þurfa borgarstjórar að opna Elliðaárnar á hverju vori. Geir skrapp reglulega í laxveiði eftir þetta, en annars notaði hann frístundir sínar til að lesa og þá mest ævisögur og ritum stjórnmál sem voru númer eitt, tvö og þrjú á vinsældalistanum.

Gunnar Thoroddsen - píanóleikari og lagahöfundur (1980 –1983) Gunnar var kunnur af áhugamálisínu þar sem margir fengu að njóta þess með honum. Hann spilaði listavel á píanó og samdi lög á hljóðfærið. Svo gott orð fór af tónlistar iðkun Gunnars að pólitískir andstæðingar hans höfðu á orði að hann hefði betur snúið sér
alfarið að píanóinu! Mörg laga hans voru hljóðrituð á plötur, en þekktast þeirra er eflaust lagið við ljóðið Litfríð og ljóshærð.

Benedikt Gröndal - málari (1979 –1980)
Á hugi Benedikts er mikill á utanríkismálum og frístundir sínar notar hann mestmegnis til að viðhalda þekkingu sinni á því sviði. Hann las mikið erlend blöð og tímarit sem ekki var algengt á þessum tíma, auk þess sem hann samdi sagnfræðirit og rit um þjóðfélagsmál. Hann hefur líka gaman af sagnfræði og bókmenntum. Benedikt er líka liðtækur vatnslitamálari.

Share

19. maí 2008| Þankar nýrra þingmanna

14. apríl 2008| Forsetar í skotlínunni


16. október 2007| Þingmannagatan á Sigló

28. maí 2007| Hannibalistar og Hulduher

27. febrúar 2007| Dauðadæmd frá upphafi?

14. desember 2006| Hin pólitísku gen








05. júlí 2006| 17 punda maríulax


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is