
„Mér finnst nauðsynlegt að stunda reglulega hreyfingu. Ef ekki þá missi ég allan damp og hef minni orku til starfa. Samhengið í þessu er ósköp einfalt. Ég hef líka margoft fundið að taki maður kannski klukkustund í að fara út að ganga skilar sá tími sér margfalt til baka. Með reglubundinni hreyfingu er hreinlega hægt að bæta fleiri klukkustundum inn í sólarhringinn,” segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, alþingismaður Samfylkingar. Hún kveðst reyndar illu heilli ekki hafa stundað hlaup nú um nokkurn tíma en sé þeim mun duglegri að fara út í gönguferðir með dóttur sinni, Hrafnhildi Ming.
Gengið í Garðabæ
”Við búum hér á Hraunsholti í Garðabæ þar sem eru margar skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu, hvort sem leiðin liggur hér með ströndinni eða inn í bæinn. Við mæðgur förum þessar slóðir oft og þá situr hún gjarnan í þríhjólakerrunni sinni. En við einskorðum gönguferðirnar svo sem ekki bara við Garðabæinn, förum líka oft inn í Reykjavík og göngum stíginn sem liggur við ströndina í Skerjafirðinum.”
Stafagangan er skemmtileg
Þórunn er nýlega farin að stunda stafagöngu, eftir að hafa sótt námskeið í slíku arki á dögunum. „Ég prófaði stafagönguna í vetur og fannst hún mjög skemmtileg. Þess vegna vildi ég læra aðeins betur hvernig maður ætti að bera sig að við þetta og varð ekki fyrir vonbrigðum. Að ganga með stafina tvo reynir meira á efri hluta líkamans en alla jafna þegar maður er á göngu. Jafnframt mýkir ganga með stöfum allt álag og hlífir hnjánum, sem verða verst úti þegar maður hleypur.“