leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


STJÓRNMÁL
14/12/2006 | 16:11

Hin pólitísku gen

Þing- mennska í ættum er aleng á Íslandi og þrír ráðherrar núverandi rísisstjórnar áttu þingmenn sem feður.

Birtingarmyndir málsháttarins um að eplið falli sjaldan langt frá eykinni eru margar. Algengt er að börn velji sama starfsvettvang og foreldrar þeirra og má í því sambandi nefna dæmi meðal lækna, flugmanna og úr prestastétt, svo eitthvað sé nefnt.

Hér verður sjónum hins vegar beint að pólitíkinni, en í íslenskri stjórnmálasögu eru allmörg dæmi um þetta. Þannig eiga þrír af ráðherrum núverandi ríkisstjórnar, þeir Björn Bjarnason, Árni M. Mathiesen og Guðni Ágústsson, feður sem voru alþingismenn og tveir þeirra voru ráðherrar. 

Texti: Sigurður Bogi Sævarsson.

Björn Bjarnason var menntamálaráðherra frá 1995 til 2002 og faðir hans, Bjarni Benediktsson, sat í því sama ráðuneyti frá  1953 til 1956. Síðastliðin þrjú ár hefur Björn verið ráðherra dómsmála, en því embætti gegndi faðir hans frá 1949 til 1956 og frá 1959 til 1963.

Bjarna verður þó ekki síst minnst sem utanríkisráðherra og arkitekts þeirrar utanríkisstefnu sem Íslendingar tóku upp með inngöngunni í Nato 1949 og hafa fylgt æ síðan. Síðustu sjö ár ævinnar var Bjarni forsætisráðherra. 

Veitir töluverðan styrk

„Vissulega veitir það manni töluverðan styrk í stjórnmálastarfi að hafa átt áhrifamikinn og þjóðkunnan föður,“ sagði Björn Bjarnason í blaðaviðtali fyrir nokkrum árum þegar hann var spurður um hvaða áhrif það hefði haft á hann að alast upp í návígi við einn fremsta stjórnmálamann sinnar tíðar eins og faðir hans óneitanlega var.

„Deilurnar voru þó miklu harðari en núna, á þeim tíma sem ég ólst upp í foreldrahúsum,“ segir Björn sem er þingmaður að langfegðatali. Þannig voru faðir hans Bjarni og bróðir hans Pétur, banka­stjóri og þingmaður Reyknesinga 1967 til 1969, synir Benedikts Sveinssonar sem var þingmaður Norður-Þingeyinga frá 1908 til 1931.

Sami Benedikt er móðurafi Halldórs Blöndals og langafi Garðbæingsins Bjarna Benediktssonar, sem setið hefur á Alþingi á yfirstandandi kjörtímabili fyrir Sjálfstæðisflokkinn.  

Hafnfirðingurinn Árni M. Mathiesen er sonur Matthíasar Á. Mathiesen, sem sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1959 til 1991, en það ár var Árni kjörinn þingmaður. Árni sem var sjávarútvegsráðherra í sex ár gegnir nú embætti fjármálaráðherra líkt og faðir hans gerði í ríkisstjórn Geir Hallgrímssonar frá 1974 til 1978.

Þá má geta þess að Árni er tengdasonur Friðjóns Þórðarsonar sem var þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi í áraraðir og dómsmálaráðherra á árunum 1980 til 1983. 

Ágúst á Brúnastöðum og Oliver Twist

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra varð strax á unglingsárum öflugur liðsmaður í ýmsum samtökum í sínu heimahéraði á Suðurlandi. Til setu á Alþingi var Guðni kjörinn 1987 og hefur verið ráðherra frá 1999.

Saga Ágústs Þorvaldssonar föður hans er ekki ósvipuð, þótt aldrei yrði hann ráðherra; Ágúst var í hreppsnefnd í heimasveit sinni, gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir bændur og var svo kjörinn á þing þar sem hann sat í nær 20 ár.

Í æviminningum sínum nefnir Ágúst að hann hafi legið í bókum sem ungur drengur og þá meðal annars lesið söguna frægu um Oliver Twist eftir Charles Dickens, sem hafi haft mikil áhrif á sig.

„Ég held að bókin hafi átt þátt í því að móta hugarfar mitt og skipa mér vinstra megin á sviði stjórnmálanna þegar ég náði aldri og þroska. Ég hef aldrei verið róttækur og aldrei sósíalisti en mannúðarmál og umbætur í félagsmálum hafa verið mér hugleikin,“ er haft eftir Ágústi en um þá feðga má segja að báðir komu úr vinstri armi Framsóknarflokksins; þar sem félagsleg samhjálp og þjóðhyggja eru áberandi. 

Halldór Ásgrímsson, sem sagði af sér forsætisráðherradómi og þingmennsku sl. vor eftir 32 ár á Alþingi, átti sömuleiðis til stjórnmálamanna að telja. Afi hans og alnafni var þingmaður Austfirðinga frá 1946 og í um tuttugu ár eftir það. 

Ágúst Ólafur kominn af Einari ríka

Tveir þingmenn Samfylkingar eiga feður sem setið hafa á Alþingi, Jóhanna Sigurðardóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson. Jóhanna, sem er starfsaldursforseti Alþingis, var fyrst kjörin á þing fyrir Alþýðuflokk árið 1978 og stefnir að áframhaldandi þingsetu.

Óhætt er að segja að pólítísk gen séu í ættboga Jóhönnu; faðir hennar, Sigurður Ingimundarson, sat á þingi fyrir Alþýðuflokkinn öll Viðreisnarárin en þá tók hann við starfi forstjóra Tryggingastofnunar ríksins, embætti sem löngum hefur verið eyrnamerkt krötum.

Sigurður var sonur Jóhönnu Egilsdóttur sem sat á þingi um hríð sem varamaður haustið 1957 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum í árdaga íslenskrar verkalýðshreyfingar. Annar Samfylkingarmaður sem hefur pólitísk gen er varaformaður flokksins, Ágúst Ólafur Ágústsson.

Faðir hans, Ágúst Einarsson, sat á Alþingi fyrir Þjóðvaka frá 1995 til 1999, en er nú prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Fyrr á árum var Ágúst hins vegar starfandi í sjávarútvegi, líkt og faðir hans Einar „ríki“ Sigurðsson útgerðarmaður sem var sjálfstæðismaður og sat á þingi sem varamaður í nokkur skipti í kringum 1960.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir hefur komið við í ýmsum flokkum. Hún byrjaði pólitískan feril sinn í Framboðsflokknum árið 1971, en hann var grínframboð. Leið hennar hefur svo legið um Alþýðubandalag, Framsóknarflokk og Þjóðvaka inn í Samfylkinguna. Afi hennar, Bjarni Ásgeirsson, var þingmaður Framsóknarflokksins 1927 til 1951 og landbúnaðarráðherra um tveggja ára skeið. 

Jón Baldvin og Vilmundur

Jón Baldvin Hannibalsson hefur líkt og faðir hans, Hannibal Valdimarsson, haft viðkomu í fleiri en einum flokki á vinstri vængnum, það er í Alþýðubandalagi, Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, Alþýðuflokknum og nú síðustu árin í Samfylkingunni þótt í litlu hafi verið.

Bróðir hans Ólafur sat á þingi sem varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Faðir þeirra Hannibal átti rætur sínar í verkalýðshreyfingunni og var lengi forseti Alþýðusambands Íslands en á þingi sat hann frá 1946 til 1974 fyrir Alþýðuflokk, Alþýðubandalagið og síðast Samtök frjálslyndra og vinstri manna og varð formaður allra.

„Ég hef alltaf verið jafnaðarmaður. Allt hitt voru gárur á yfirborðinu,“ sagði Hannibal í blaðaviðtali þegar hann hvarf af þingi eftir 28 ára setu þar.

Annar jafnaðarmaður sem lagði stjórnmálin fyrir sig eins og ættarfylgjan bauð er Vilmundur Gylfason. Faðir hans Gylfi Þ. Gíslason var þingmaður Alþýðuflokksins frá 1946 til 1974 og ráðherra drjúgan hluta þess skeiðs.

Enginn hefur setið lengur í ráðuneyti menntamála en Gylfi, eða frá 1956 til 1971, og enginn skemur en Vilmundur sem var ráðherra menntamála og dóms- og kirkju­mála í minnihlutastjórn Alþýðuflokksins sem sat nokkra mánuði frá haustinu 1979 og fram í febrúar árið eftir.

Vilmundur var heitinn eftir afa sínum Vilmundi Jónssyni landlækni sem var þingmaður Alþýðuflokksins milli 1930 og 1940. 

Við skráargatið

Steingrímur Hermannsson var formaður Framsóknarflokksins í um fimmtán ár og forsætisráðherra í sjö ár. Því hefur Steingrímur lýst sjálfur að hann hafi alist upp við skrárgat stjórnmálanna; faðir hans var Hermann Jónasson, þingmaður Framsóknarflokksins frá 1934 til 1967, formaður flokksins lengi og forsætisráðherra á stríðsárunum og undir lok sjöunda áratugarins.

En þótt Steingrímur og Hermann hafi báðir verið framsóknarmenn er fylgispekt við þann flokk ekkert lögmál í fjölskyldu þeirra. Sonur Steingríms, Guðmundur, var meðal þátttakenda í nýafstöðnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi þar sem hann náði 5. sæti og ljóst að hann stefnir lengra í náinni framtíð.

Í frásögur þótti færandi þegar Jóhanna Pálmadóttir á Akri í Húnavatnssýslu tók síðast­liðinn vetur sæti á Alþingi, sem varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, að hún fetaði í fótspor þriggja forfeðra sinna.

Jóhanna er dóttir Pálma Jónssonar sem var þingmaður frá 1967 til 1995 og landbúnaðarráðherra um skeið. Pálmi er sonur Jóns Pálmasonar sem sat á þingi frá 1933 til 1959 og var lengi forseti Sameinaðs þings. Afi Jóns og alnafni, langalangafi Jóhönnu, var þingmaður Vestur-Húnvetninga um 1860.

Birgir Kjaran, afi Birgis Ármannssonar, var þingmaður Sjálfstæðismanna og varaþingmaður um skeið á árunum 1959 til 1974. Afi Einars Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra og alnafni kom sem varamaður inn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn um miðjan sjöunda áratuginn. 

Stefán og synirnir þrír

Síðast eru hér gerðir að umtalsefni Stefán Gunnlaugsson og synir hans. Alþýðuflokksmaðurinn Stefán var bæjarstjóri í Hafnarfirði frá 1954 til 1962 og var þingmaður 1971 til 1974.

Í kosningunum 1978, þegar Alþýðuflokkurinn vann sinn stærsta sigur, náðu tveir sona hans kjöri á þing, Finnur Torfi og Gunnlaugur. Báðir féllu þeir út af þingi í desemberkosningunum árið eftir en sá síðarnefndi átti þó afturkvæmt og og var þingmaður Austlendinga 1991 til 1995.

Árið 1993 kom þriðji bróðirinn, Guðmundur Árni, svo inn á svið landsmálanna en hann átti þá að baki sjö ár í bæjarstjórastól í Hafnarfirði. Guðmundur sat á þingi í tólf ár – og var um skeið ráðherra – en gerðist sendiherra í Svíþjóð þegar hann vék af velli í fyrra.

Lýkur hér að segja frá ættartengslum íslenskra alþingsmanna, í grein sem er fráleitt tæmandi.

Myndir:

1 - Matthías Mathiesen fyrrverandi ráðherra og alþingismaður, sonur hans Árni, fjármálaráðherra og alþingismaður og tengdafaðir Árna, fyrrum ráðherra og alþingismaður.

2 - Bjarni Benediktsson, alþingismaður og forsætisráðherra sést hér í alþingisgarðinum með syni sínum Birni nýstúdent, sem síðar varð alþingismaður og ráðherra. Með þeim á myndinni er Matthías Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins.

3 - Hér sjást þeir feðgar Ingi Björn Albertsson og Albert Guðmundsson, en þeir sátu saman á Alþingi um skeið.

Share

19. maí 2008| Þankar nýrra þingmanna

14. apríl 2008| Forsetar í skotlínunni


16. október 2007| Þingmannagatan á Sigló

28. maí 2007| Hannibalistar og Hulduher

27. febrúar 2007| Dauðadæmd frá upphafi?

14. desember 2006| Hin pólitísku gen








05. júlí 2006| 17 punda maríulax


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is