leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


STJÓRNMÁL
05/07/2006 | 11:46

Hlaupið til þings- Steingrímur J. Sigfússon

Síðast í ágúst byrjaði Steingrímur J. Sigfússon þingmaður VG að æfa fyrir New York maraþonið sem haldið verður vestra í nóvember næstkomandi. Þar verður hann meðal þúsunda þáttakenda, þar af allmargra héðan að heiman. “Maður þarf að æfa vel og skipulega ætli maður að geta lokið maraþonhlaupi með sæmilegri reisn. Þá er ég að tala um geta náð þessum rúmlega 42 kílómetrum á kannski tæpum fjórum klukkutímum. Það er markmiðið sem ég hef, en þó fyrst og fremst að vera með og ljúka mínu skammlaust. Eftir göngu mína frá Reykjanestá og á Langanesfont í sumar er ég búinn að byggja upp ágætt þrek. Æfingar á næstunni miða að því að auka hlaupaúthaldið.”

Líkamleg áreynsla er nautn

Það er helst síðla dags sem Steingrímur gefur sér tíma í hlaupin. Slíkt segir hann þó ráðast þó mjög af aðstæðum hverju sinni og hvenær sé smuga í annars þéttri stundarskrá. “Stundum hleyp ég héðan heiman úr Seljahverfinu og niður á þing. Fari ég stystu leiðina er ég lítið lengur á leiðinni en strætó. Þá fer ég hér um Breiðholtið niður Elliðaárdal, um Fossvog og svo neðan við Öskjuhlíðina og þá er maður nánast komin niður í Kvos. Þetta eru nálægt tíu kílómetrum, aðeins mismunandi eftir því hvaða leið er valin og þægilegt að ná þessu á svona 40 til 45 mínútum. Stundum hef ég líka tekið hlaupagallann með mér niður í þing og hleyp heim, þá eitthvað lengri leið. Gef mér þá svona eina til eina og hálfa klukkustund í dæmið. Fimm til tíu klukkutímar á viku í eitthvert púl er markmiðið.”
Steingrímur hefur stundað íþróttir síðan í barnæsku og kynntist því snemma á æskuslóðum norður í Þistilfirði að vinna erfiðsvinnu og ganga í öll störf til sjávar og sveita . “Líkamleg áreynsla er mér nautn og mér finnst alltaf gaman að taka til hendinni. Að fara út að hlaupa er hluti af því. Mér veitir heldur ekkert af því. Á þeim árum þegar ég var ráðherra taldi ég mig svo upptekinn og mikilvægan að hlaup og önnur líkamsrækt duttu í nokkur ár alveg upp fyrir. Þetta er eitthvað það vitlausasta sem ég hef gert og afleiðingarnar voru fljótar að koma í ljós. Þegar ég fór aftur að taka frá tíma í að hreyfa mig var ég býsna lengi að byggja upp þrek og snerpu,” segir Steingrímur sem gjarnan hleypur með þeim Helga Bernódussyni skrifstofustjóra Alþingis, Páli Haraldssyni sem starfar á rekstrarsviði þingsins og Stígi Stefánssyni sem starfar á alþjóðasviði. Fjórði maðurinn er Pétur H. Blöndal alþingismaður.

Esjan tekin á tveimur tímum

Síðasta vetur var Steingrímur í stífri þjálfun og æfingum vegna fyrirhugaðar gönguferðar sinnar, sem hann tók síðustu viku júní- og fyrri helming júlí mánaða í. “Auk þess að skokka og spila blak gekk ég að jafnaði einu sinni í viku á Esjuna og lék mér að því að ná upp á topp og niður aftur á hálfum öðrum tíma ef færi og veður var sæmilegt. Einu sinni náði ég meira að segja alveg héðan úr bænum upp á Þverfellshorn og til baka aftur á tæpum tveimur klukkustundum,” segir Steingrímur og bætir við að allir ættu að geta fundið tvo klukkutíma í vikunni til að ganga á Esjuna.
”Önnur byggðarlög landsins eiga sínar heilsuræktarstöðvar. Akureyringar hafa Hlíðarfjall og Súlur og svo Kerlingu ef menn vilja taka almennilega á því. Hvergerðingar og Selfossbúar hafa Ingólfsfjall og svona gæti ég haldið áfram,” segir Steingrímur sem hvetur alla sem eru að byrja að stunda göngur, hlaup eða aðra líkamsrækt að fara hægt af stað. Byggja þrek og snerpu upp jafnt og þétt, enda séu leiftursóknir í þessu efni sem öðru ekki skynsamlegar.

 

 

 

Share

19. maí 2008| Þankar nýrra þingmanna

14. apríl 2008| Forsetar í skotlínunni


16. október 2007| Þingmannagatan á Sigló

28. maí 2007| Hannibalistar og Hulduher

27. febrúar 2007| Dauðadæmd frá upphafi?

14. desember 2006| Hin pólitísku gen








05. júlí 2006| 17 punda maríulax


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is