
SKÝ er glæsilegt tímarit sem kemur út annan hvern mánuð. Aðalsmerki ritisins er fjölbreytilegt efni, hönnun og ljósmyndir á heimsmælikverða.
Því er dreift til farþega um borð í flugvélum Flugfélags Íslands. Lesendakönnun Gallups sýnir að helmingur landsmanna hefur lesið blaðið á árinu 2005.
Efni blaðisins er mjög fjölbreytilegt og ætlað að höfða til þess stóra og fjölbreytilega hóps sem ferðast með flugvélum innanlands.
Helmingur landsmanna hefur lesið SKÝ á þessu ári og nýtur tímaritið sömu hylli meðal kvenna og karla. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup gerði fyrir útgáfufélag SKÝJA, Heim hf., í lok ágúst og byrjun september 2005.
Ritstjórar Skýja eru Benedikt Jóhannesson og Jón G. Hauksson.
Auglýsingastjóri er Inga Halldórsdóttir.
Smellið hér til að skoða stærðir og verðskrá fyrir auglýsingar.