
Óhætt er að segja að Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, einn þáttastjórnenda Íslands í bítið, hafi farið í gegnum öldudali í lífinu. Aðeins 14 ára gömul hóf hún fyrirsætuferil og vann síðar keppnina um Ungfrú Ísland. Um tvítugt missti hún föður sinn skyndilega og fyrir þremur árum gekk hún í gegnum erfiðan skilnað við barnsföður sinn.
Lífsgleðin skín úr augum Ragnheiðar Guðfinnu sem hefur unnið á uppbyggilegan hátt úr þeim erfiðleikum sem hún hefur mætt á lífsleiðinni. Þegar blaðamaður hittir hana að máli er hún nýlega komin heim úr ævintýralegu ferðalagi á Maldíveyjum.
„Ég var þar í viku með draumamanninum,“ segir hún glottandi. „Mér fannst ég upplifa mig í teiknimyndinni Nemo því það er svo mikið og litfagurt sjávarlíf þarna. Maður var fljótur að ganga hring í kringum eyjuna svo þetta var hálfgerð einangrun en það var yndislegt að vera þarna og ég kom endurnærð til baka,“ segir Ragnheiður Guðfinna brosandi og ekki er hjá því komist að spyrja hana út í nýju ástina í lífi hennar: „Ég hef alltaf lent í því þegar ég er að kynnast einhverjum að þá er ég máluð út í horn af slúðurfréttablöðum þannig að ég vil ekki tala um þetta að svo stöddu en það eru ekki til margir gullmolar eins og hann.“
Þannig að þú hefur lent í því að vera á milli tannanna á fólki?
„Ég hef lært af því, eftir að birtar hafa verið um mig greinar í slúðurblöðum, að hætta að láta það fara í taugarnar á mér. Maður lendir í þessu af því að maður er þekkt andlit og ég hef tekið eftir að eftir því sem maður lætur þetta fara meira í taugarnar á sér, því áhugasamari verða blöðin þannig að það virkar best að láta sig þetta engu varða. En ég hef lent í þessu bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt og vissulega býður maður að einhverju leyti upp á þetta með því að vera opinber manneskja.“
Sviplegt fráfall föður
Ragnheiður Guðfinna ólst upp í Vestmannaeyjum og á góðar minningar úr uppvexti sínum þar. Hún var ung þegar hún hóf fyrirsætuferil sinn og hélt þá út í heim.
„Ég ferðaðist víða vegna fyrirsætustarfanna og þar sem ég var aðeins 14 ára gömul þegar þessi ferill hófst, voru foreldrar mínir duglegir að heimsækja mig þar sem ég var hverju sinni. Síðan kom ég heim þegar faðir minn lést skyndilega árið 1999. Hann fékk bráðakrabbamein og veikist á þriðjudegi og lést á föstudegi þannig að áfallið var mikið. Þegar maður hefur lent í því að missa náinn ættingja tekur maður því sem verkefni sem maður þarf að leysa sem best. Hver einasta hindrun sem ég hef þurft að fara yfir hefur kennt mér eitthvað og skilað mér sem þeirri manneskju sem ég er í dag,“ útskýrir Ragnheiður Guðfinna og segir jafnframt:
„Það er hægt að leggjast undir sæng þegar erfiðir tímar koma en líka hægt að þakka fyrir góða daga og vinna úr því sem maður hefur, eins og til dæmis að eiga góða fjölskyldu og góða vini. Að eiga heilbrigt líf og heilbrigt barn er ómetanleg gjöf. Eftir þetta fór ég að meta það meira að eiga mömmu hérna megin og við urðum mjög nánar í kjölfar þessara erfiðleika.“
Ófrísk fegurðardrottning
Ragnheiður Guðfinna lauk stúdentsprófi frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum en árið 2001 kom hún upp á fastalandið og tók þátt í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland þar sem hún fór með sigur af hólmi.
„Áður en ég fór í keppnina hafði ég prófað bæði lögfræði- og hönnunarnám en ekki fundið mig í því. Það var skemmtileg reynsla að taka þátt í Ungfrú Íslandi, og ekki sakaði að sigra.
Þátttakan styrkti í mér beinin en þetta var óvenjuleg reynsla því eftir að ég var krýnd komst ég að því að ég var ófrísk svo að hjá mér tók við barnauppeldi í stað þess að taka þátt fyrir Íslands hönd úti í heimi. En ég held og vona að ég hafi verið góð fyrirmynd fyrir aðrar ungar stelpur. Það gat ekkert jafnast á við það að vera í því hlutverki sem ég var í, með þennan demant sem ég fékk, og að þurfa að bera ábyrgð á annarri manneskju,“ segir Ragnheiður Guðfinna dreymin á svip. Sonur Ragnheiðar Guðfinnu heitir Tristan Gylfi en foreldrunum fannst nafnið við hæfi þar sem móðirin var nýkrýnd fegurð-ardrottning þegar hún gekk með hann. Nú er Ragnheiður Guðfinna einstæð móðir og þar sem forræðið er sameiginlegt er hún með son sinn í viku, þá næstu er hann hjá föður sínum og þannig til skiptis.
„Mér fannst rosalega erfitt að sætta mig við þessa umgengni fyrst en þetta gefur manni betra tækifæri til að sinna sínu perónulega lífi og vinnu. En mér finnst ég missa af miklu í lífi þessa litla gullmola sem Tristan Gylfi er. Barnið mitt blómstrar núna og hann á frábæran pabba. Einnig á hann yndislegar fjölskyldur úr báðum áttum, föðuramma og -afi hans reynast honum mjög
vel og móðir mín er hálfgerð mamma hans númer tvö, þau eru bestu vinir. En í framtíðinni fær hann síðan að ráða því sjálfur hvernig hann vill hafa þetta, það er að segja hvar hann dvelur og hversu lengi.“
Þroskandi sjónvarpsstarf
Eftir að Tristan Gylfi, sonur Ragnheiðar Guðfinnu, fæddist fór hún í markaðsfræðinám við Viðskipta- og tölvuskólann. Í kjölfarið hóf hún störf í Ölgerðinni, Bláa Lóninu og fleiri stöðum en síðast vann hún við viðburðastjórnun hjá Base Camp
„Einn daginn hringdi Róbert Marshall í mig og bauð mér starf sem þáttastjórnandi í Íslandi í bítið. Mér fannst þetta hálfóraun-verulegt en þetta var svona tækifæri sem býðst manni bara einu sinni í lífinu. Það var erfitt að sleppa starfinu hjá Base Camp þar sem ég vann með mjög hæfileikaríku og frábæru fólki en ég sé ekki eftir því. En álagið er mikið og áreiti allan daginn og ég á ekki mikið félagslíf því ég fer að sofa klukkan tíu á kvöldin og mæti um fimm á nóttunni í vinnuna. Þetta er virkilega skemmtilegt, ég hef kynnst óendanlega mörgu fólki og þetta starf hefur þroskað mig,“ segir sjónvarpskonan.
Áður en Ragnheiður Guðfinna byrjaði í morgunþættinum hafði hún reyndar örlitla sjónvarpsreynslu þar sem hún var einu sinni í viku á PoppTíví með lífsstílsþætti ásamt Halldóri Kolbeinssyni.
„Það er tvennt ólíkt að vera úti í bæ og þurfa að klippa og skera sjálfur heldur en að vera í beinni útsendingu. En ég bý að þeirri reynslu að hafa verið vön myndavélunum. Þetta er mikil pressa og mér finnst miklu skipta að láta ekki á sjá og vera ekki þreytu-legur þannig að þetta er erfitt en ofboðslega gefandi,“ útskýrir Ragnheiður Guðfinna.
Þannig að þú hefur fengið jákvæð viðbrögð frá áhorfendum?
„Ég hef fengið nokkuð góðar undirtektir hjá þjóðinni en það verður enginn sjónvarpsmaður á einum degi. Ég hef heyrt misgott um mig sem sjónvarpskonu en gagnrýni er til að læra af, það er að segja ef eitthvað er að marka hana. Ég finn fyrir öfundarröddum og mér finnst stundum skína í gegn, þegar verið er að gagnrýna, að ekki sé nóg að vera falleg til að vera í sjónvarpi. Ef maður er með-vitaður um sjálfan sig og að stíga upp stigann í vinnunni sinni held ég að maður ætti ekki að geta gert neinum mein.“
Fréttir af fræga fólkinu!
Það er ýmislegt á döfinni hjá Ragnheiði Guðfinnu og meðal annars nýr vettvangur í sjónvarpinu þar sem hún mun stýra eigin sjónvarpsþætti og jafnframt minnka við sig vinnu í Íslandi í bítið. „Ég verð einu sinni til tvisvar í viku í Ísland í bítið þar sem ég kem að skipulagsvinnu og verð með innslög. Ég er að byrja með þátt sem er í mótunarvinnu núna en fyrirmyndin er erlendir þættir þar sem fylgst er með lífi ríka og fræga fólksins, eða „entertainment news“, þannig að ég mun fjalla um allt það sem er að gerast í heimi stjarnanna í Hollywood.
Þessi vettvangsskipti gera að verkum að ég mun eignast fjölskylduvænna líf. En ég var ekki tilbúin að sleppa hendinni alveg af Íslandi í bítið þar sem það er líflegur og lifandi þáttur. Ég fékk sem betur fer að halda annarri löppinni þar inni og er mjög ánægð með það,“ útskýrir Ragnheiður Guðfinna. Aðspurð um hvort hún hlakki til að lifa og hrærast í slúðrinu svarar hún: „Ég hef ekki verið mikil slúðurdrottning hingað til heldur ein af þeim sem fletti blöðum og skoða myndir. Mér finnst fólk og lífsstíll mjög áhugavert svið og ég hef mjög gaman af því að fylgjast með því sem er að gerast.“
Lífsstílsnámskeið fyrir unglinga
Ragnheiður Guðfinna er mjög fylgjandi heilsurækt og hollum lífsháttum og síðastliðið sumar hélt hún ásamt Arnari Grant einkaþjálfara námskeiðin Lífskraftur fyrir unglinga. Þau tókust vel og nú er undirbúningur fyrir námskeið næsta sumars kominn á fullt. „Við renndum blint í sjóinn með þetta en námskeiðin gengu framar vonum. Markmiðið var að kynna fjölbreytta hreyfingu fyrir unglinga og á hverjum degi kynntum við fyrir þeim nýja möguleika. Við gengum til dæmis á Esjuna með þau, fórum með þau á línuskauta og fleira. Einnig fengu þau kynningu á því hvernig eigi að lifa heilsusamlegu lífi og fengu mánaðarbirgðir af skyri og fæðubótardrykk. Einnig vorum við með fyrirlestur fyrir foreldrana þar sem við brýndum fyrir þeim að vera réttar fyrirmyndir og kenndum þeim að kaupa inn hollan og góðan mat,“ segir Ragnheiður Guðfinna og bætir við: „Á þessum aldri vita krakkarnir ekki hvað þau vilja svo að við reynum að finna þeirra áhugasvið. Þar sem enginn hafði sinnt þessum hópi, þ.e. af líkamsræktarstöðvunum, ákváðum við að prófa að halda svona námskeið. Ég fór í þetta til að skila þeim ánægjulegu og eftirminnilegu sumri og hóparnir sem við vorum með í fyrra voru í skýjunum. Það er gaman að sjá krakkana njóta sín og þetta var ákveðin hleðsla fyrir mig um leið.“
Erfiðir og lærdómsríkir tímar
Eins og áður sagði hefur Ragnheiður Guðfinna upplifað jákvæð og neikvæð tímabil í lífi sínu sem hún hefur lært mikið af. Hún hefur sótt styrk í NLP-fræðin sem hafa kennt henni margt.
„Ég fór á námskeið hjá Kára Eyþórssyni í NLP og ég er í raun rétt að byrja að skoða það. Það er gott að hafa eitthvað til að vinna á hlutum sem leggjast á líkama og sál. NLP hjálpar manni að hugsa hvernig maður eigi að höndla lífið, hugarlega og líkamlega séð. Hugurinn getur verið versti vinur manns en þegar maður er farinn að gera sér grein fyrir sjálfum sér er maður á réttri leið,“ útskýrir Ragnheiður Guðfinna og segir jafnframt: “Lífið getur breyst á einum degi og ég er með heilan pakka á bak við mig. Þegar pabbi dó missti ég 70 prósent af hjarta mínu því ég var svo náin honum. Síðan er erfitt að verða ástfanginn í fyrsta skipti og sjá fyrir sér ævilangt samband með þeim manni. Ég fann fyrir öryggi aftur í lífinu þegar ég kynntist barnsföður mínum en síðan gekk það ekki og ég þurfti að hefja nýtt líf og standa á eigin fótum. En jákvæðnin hefur hjálpað mér á erfiðum tímum og að bjóða tækifærin velkomin. Ég er virkilega ánægð með stöðu mína í dag.“
Í einbýli og Bláa lóninu
Seinnipart síðastliðins árs festi Ragnheiður Guðfinna kaup á einbýlishúsi með móður sinni en það þykir nokkuð óvenjulegt í dag, að búa í slíku návígi við foreldri sitt. „Ég hafði verið á flakki á milli staða með strákinn og okkur báðar, mig og mömmu, var farið að langa að skoða nýja hluti. Mamma var vön að búa í einbýlishúsi í Vestmannaeyjum og einn daginn barst það í tal að við myndum kaupa saman. Við sögðum þetta meira í gríni en alvöru. En það varð úr og mamma býr uppi en ég á neðri hæðinni. Okkur líður mjög vel og við erum með stóran og fínan garð og heljarinnar náttúru í kringum okkur,“ útskýrir Ragnheiður Guðfinna.
Ragnheiður Guðfinna er í annasömu starfi en nýtir tímann vel með syni sínum þegar þau eiga frístundir saman. Stundir sem eru ánægjuríkar og gefandi. „Ég fer mikið með Tristan Gylfa út í náttúruna og í Bláa lónið sem er einn af okkar uppáhaldsstöðum. Það er sá staður sem ég sæki orku til. Líkamsrækt er stór hluti af mínu lífi og að komast í ræktina er mín vítamínblanda. Ég stilli því þó í hóf að fara í ræktina þannig að ég fái ekki ógeð en tek þá bara betur á því þegar ég fer. Þar get ég hlaðið batteríin frá grunni og kúplað mig frá öllu stressi sem er mér mjög mikilvægt,“ segir Ragnheiður Guðfinna geislandi og glöð með lífið.