
Til að koma til móts við erlenda fjölmiðla hefur forsætisráðuneytið opnað gagnagrunn á netinu þar sem blaðamenn hafa aðgang að fréttatilkynningum á ensku, ljósmyndum og myndböndum frá blaðamannafundum.
Erlendir fjölmiðlar sýna efnahagsástandinu á Íslandi mikinn áhuga, sérstaklega í ljósi Icesave reikninga Landsbankans í Bretlandi og á Hollandi og óánægju stjórnvalda þar með viðbrögð íslenskra stjórnvalda, sem þau halda fram að ætli að skorast undan ábyrgð.
Reglulegur, opinber fréttaflutningur forsætisráðuneytisins gæti e.t.v. hjálpað erlendum fjölmiðlum að skilja stöðuna betur út frá sjónarmiði íslenskra stjórnvalda og fyrirbyggt misskilning. Slóðin er: http://www.redfrost.com/login.jsp