leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið


14/10/2008 | 11:08

Framúrskarandi árangur í íslenskri upplýsingatækni

Microsoft á Íslandi hefur útnefnt fyrirtækin EJS og Landsteina Streng sem samstarfsaðila ársins 2008. EJS hlýtur nafnbótina í hópi fyrirtækja sem starfa að kjarnalausnum Microsoft en Landsteinar Strengur fyrir viðskiptalausnir Microsoft.

Viðurkenningarnar eru veittar fyrir framúrskarandi árangur í þróun, þjónustu og sölu Microsoft-lausna á síðasta fjárhagsári Microsoft. Fjórir samstarfsaðilar til viðbótar hlutu viðurkenningu á verðlaunaafhendingu Microsoft á Íslandi sem fram fór fyrir skömmu. Fyrir kjarnalausnir voru Opin kerfi og NTV verðlaunuð auk EJS og fyrir viðskiptalausnir hlutu Annata, LS Retail og Maritech verðlaun.

Hulda Kristín Guðmundsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri samstarfsaðila Microsoft Íslandi, Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi, Örn Þór Alfreðsson, framkvæmdastjóri búnaðarsviðs EJS og Jóhann Áki Björnsson, viðskipta- og vöruþróunarstjóri EJS.

Sigurjón Pétursson, framkvæmdastjóri Landsteina Strengs, og Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi.

Fram kom við verðlaunaafhendinguna að íslensk fyrirtæki hafi að undanförnu vakið sérstaka athygli á alþjóðavísu fyrir þróun Microsoft Dynamics viðskiptalausna.

Í sumar fengu tvö íslensk fyrirtæki, Landsteinar Strengur og LS Retail, inngöngu í svokallaða „Inner Circle Club“ og „President’s Club“ hópa Microsoft-samstarfsaðila í viðskiptalausnum, auk þess sem Maritech hefur komist í President’s Club tvö ár í röð.

Einungis allra bestu samstarfsaðilar Microsoft á alþjóðavísu fá inngöngu í þessa hópa og er það talið með eindæmum að þrjú fyrirtæki frá Íslandi nái svo góðum árangri.

„Þessi árangur sýnir svo ekki verður um villst að íslensk upplýsingatækni er á heimsmælikvarða,“ sagði Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi, við verðlaunaafhendinguna.
 
„Landsteinar Strengur, LS Retail, Maritech og Annata hafa þróað viðskiptalausnir sem hafa náð verulegri útbreiðslu á alþjóðlegum mörkuðum og eftir því er sérstaklega tekið í höfuðstöðvum Microsoft að íslensk fyrirtæki standi svo framarlega á þessu sviði,“ bætti hann við.

„Þar að auki hafa EJS, Opin kerfi og NTV náð frábærum árangri við að aðstoða íslensk fyrirtæki við að nýta kjarnalausnir Microsoft til hins ítrasta,“ sagði Halldór að lokum.

 

 

 

Share




13. október | Ericsson nýtir vindorku












Gagnagrunnur
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is