
Næstkomandi þriðjudag, 21. október, heldur Skýrslutæknifélag Íslands (Ský) ráðstefnuna „Upplýsingatækni og tónlist“. Jakob Frímann Magnússon, Einar Örn Benediktsson og Andrea Jónsdóttir halda fyrirlestra yfir hádegisverði.
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á sky@sky.is eða hringja í síma 553-2460.
Í gær hélt Ský ráðstefnuna „Lausnir til framtíðar“ um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu. Fjallað var um ýmis konar verkefni, s.s. hvernig megi nota upplýsingatækni til að bæta meðferð sjúklinga.
Einnig var fjallað um betra aðgengi að þjónustu í heilbrigðiskerfinu með upplýsingatækni og hvernig hægt er að nota tæknina til að vinna úr gögnum og auka samfellda þjónustu.
Ráðstefnustjóri var Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri lækninga á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Smellið hér til að fá frekari upplýsingar um ráðstefnurnar.