
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð.
Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt frá bernskudögum hans til seinni tíma. Þetta er um margt forvitnilegur maður, sem markað hefur spor í tölvusöguna sem seint verða afmáð.
Bill Gates, eða William Henry Gates III, eins og foreldrar hans skírðu hann, fæddist í Seattle í Bandaríkjunum 28. nóvember árið 1955 og er því nýorðinn fimmtugur. Faðir hans, William H. Gates eldri, var vel þekktur lögfræðingur í borginni, en móðir hans, Mary Maxwell Gates, var barnaskólakennari. Sögur um erfiða æsku aðalsöguhetjunnar sem berst til fjár og mannorða fyrir eigin rammleik er fjarri ævisögu Bill Gates. Fjölskylda hans var fremur efnuð og átti Bill litli þegar eina milljón dollara í sjóði sem afi hans, sem var aðstoðarbankastjóri, hafði stofnað honum til handa.
Afburða námsmaður með áhuga á tölvum
Gates litli sýndi ungur að árum fram á afburða árangur í skóla, sérstaklega í stærðfræði og náttúrufræði og létu foreldrar hans son sinn gangast undir gáfnapróf. Niðurstaðan reyndist ótrúleg en barnið reyndist vera með greindarvísitöluna 160. Foreldrar Bills litla skráðu hann til náms í hinn virta Lakeside grunnskóla sem var einkarekinn. Þar komst hann í fyrsta sinn í kynni við tölvur þess tíma, sér í lagi DEC PDP-10, 36 bita tölvu sem einungis var til í stærri háskólum í Bandaríkjunum á sjöunda áratug síðustu aldar. Bill eyddi miklum tíma framan við tölvuna og 13 ára gamall tókst honum að skrifa fyrsta tölvuforritið sitt. Engum sögum fer hins vegar af því hvað forritið gerði.
Bill Gates virðist hafa verið draumabarn allra foreldra. Hann þótti frekar félagslyndur og gekk ungur til liðs við bandarísku skátahreyfinguna og er hann, að því vitað er, enn liðsmaður hennar. Þá hélt hann áfram menntaveginn að loknu skyldunámi en í menntaskóla í Seattle komst hann í kynni við Paul nokkurn Allen. Þeir skrifuðu saman hugbúnað sem gerði stjórnvöldum kleift að telja bíla á vegum úti og launakerfi fyrir litlar skólastofnanir. Stofnuðu þeir með sér fyrirtækið Traf-o-Data og seldu þeir hugbúnaðinn með ágætum árangri.
Fyrstu skrefin að stórveldi
Gates hóf nám við Harvard háskólann í Bandaríkjunum árið 1973 og þar sáði hann þeim fræjum sem síðar áttu eftir að bera af sér ríkulegan ávöxt. Komst hann þar til dæmis í kynni við Steve Ballmer, sem síðar átti eftir að verða framkvæmdastjóri fyrirtækis þess fyrrnefnda. Hann kemur hins vegar ekki meira við sögu hér. Annað háskólaárið var hins vegar merkilegt fyrir þær sakir að á þeim tíma skrifaði Gates fyrstu skipanirnar að BASIC forritunarmálinu fyrir Altair 8800 tölvur í slagtogi við þá Paul Allen og Monte Davidoff. Félagarnir bundu fljótt miklar vonir við hugbúnaðinn og kastaði Gates námsferlinum fyrir róða áður en hann komst upp á þriðja ár í Harvard til að einbeita sér að hugbúnaðarþróun. Mörgum sögum fer af því hvort Gates eða Allen hafi búið til forritið en víst er að eftir að Paul Allen flaug áleiðis til fundar við forsvarsmenn fyrirtækisins MITS (Micro Instrumentation and Telemtetry Systems) árið 1975 til að fá einkaleyfi fyrir hugmyndinni, varð ekki aftur snúið. Þeir félagar stofnuðu saman fyrirtækið Micro-Soft, sem síðar var breytt í hið heimfræga hátæknifyrirtæki Microsoft.
Það er ljóst að Bill Gates hefur ávaxtað einnar milljóna dollara sjóð afa síns með ágætum. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er þessi stofnandi og forstjóri Microsoft með eina milljón dollara, um 63 milljónir íslenskra króna, í árslaun og er hann metinn á um 51 milljarð dala. Hann giftist eiginkonu sinni, Melindu French, árið 1994 og búa þau ásamt þremur börnum sínum, í víggirtu húsi við Washington stöðuvatnið í námunda við Seattle, en það er sagt vera eitt af dýrustu húsum í heimi.