leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið


06/03/2006 | 00:00

Douglas Carl Engelbart (Annar hluti): Maður með framtíðarsýn / 02/2005

Árið 1957 litu margir Douglas Engelbart hornauga.  Hugmyndir hans um þróun tölvunnar þóttu heldur einkennilegar. Þrátt fyrir mótlætið lét hann ekki staðar numið og árið 1968 leit hugmynd hans dagsins ljós.

Douglas Engelbart þótti hafa heldur barnslega framtíðarsýn eins og fram kom í síðasta tölublaði Tölvuheims. Í kjölfar þess að hann útskrifaðist með doktorsgráðu í rafmagnsverkfræði frá Berkeley háskólanum í Bandaríkjunum árið 1955, auk vinnu innan skólans, hóf hann að vinna að því að láta framtíðardrauma sína rætast. Engelbart sá fyrir sér hópa einstaklinga sem sátu fyrir framan túbuskjái og notuðu tölvur til að deila upplýsingum sín á milli óhindrað á neti sem tengdi tölvurnar saman. Samstarfsfélögum hans við háskólann í Bandaríkjunum árið 1957 leist á ekki á kauða. Þeim fannst hugmyndir hans jaðra við vísindaskáldskap og eiga lítið sameiginlegt með raunveruleikanum. Hvort það er að þakka þröngsýni eða einhverju öðru töldu samstarfsfélagar Engelbarts að della hans gengi ekki lengur og stóðu þeir í vegi fyrir því að hann hlyti stöðuhækkun innan háskólans í Berkeley. Þegar Engelbart komst að raun um fals vina sinna og þröngsýnan hugsunarhátt þeirra sagði hann starfi sínu lausu og hélt suður á bóginn.
 
Atvinnuleit í örflögudal
Engelbart ók niður til vesturstrandarinnar og settist að í Silicon Valley. Örflögudalurinn var á þessum tíma að byggjast upp sem hátæknibær og næg eftirspurn eftir hæfu fólki til starfa. Það leið ekki á löngu þar til Engelbart fékk stöðu við Stanford háskólann. Tveimur árum síðar var hann búinn að skapa sér svo sterkt orðspor að hann gat nú hafist handa við að láta framtíðardrauma sína rætast.
Árið 2000 heiðraði Bill Clinton Douglas Engelbart fyrir framlag sitt til vísinda og hér má sjá þá félaga saman við það tilefni.
Árið 1961 steig hann fyrstu sporin þegar hann kynnti til sögunnar lítinn og skínandi ávalan hlut úr lökkuðu tré. Úr öðrum enda kubbsins var leiðsla og lá hún að geysistórri tölvu. Þetta var fyrsta tölvumúsin. Þótt þetta hafi ekki verið nema hliðarskref að draumi Engelbarts sá hann fljótt notagildi músarinnar og sótti um einkaleyfi á framleiðslu hennar. Fyrir þessa uppgötvun sína fær Engelbart dágóða upphæð á ári. Í kjölfarið opnuðust honum ýmsar dyr. Styrktaraðilar beinlínis gáfu honum fé til rannsókna og var fljótt svo komið að hann gat ráðið til sín aðstoðarfólk.
Uppgötvun Engelbarts telst í okkar augum sáraeinföld. Honum tókst að tengja tölvur fortíðar, þá gríðarlegu klumpa sem þær voru á þeim tíma, með kapli við músina góðu, hefðbundinn sjónvarpsskjá og lyklaborð, sem teymi hans hannaði. Sjónvarpsmyndavél var komið fyrir framan við eina tölvuna. Vélin var tengd tölvu og átti hún með þeim hugbúnaði sem teymi Engelbarts hafði einnig hannað að geta séð alfarið um sjónvarpsútsendingu um nettengt tölvukerfi á lokaðri rás.
Tilraunin átti sér stað árið 1968 og tók um 90 mínútur. Þótt áhorfendur sæju aðeins Engelbart standa með hljóðnema framan við sjónvarpsmyndavélina og hreyfa mús fram og til baka í þær 90 mínútur sem tilraunaútsendingin tók var niðurstaðan eftirfarandi: Douglas Engelbart hafði tekist að láta tölvu framkvæma fleiri verk en nokkurn óraði fyrir. Framtíðin ein gat skorið úr um hvort tilraunir hans skiluðu árangri. Og dæmi nú hver sem vill.

Í fullu fjöri
Það er engu líkara en að Douglas Engelbart hafi ekki einasta tekist að láta drauma sína rætast um kerfi tölva sem starfa á samtengdu neti heldur virðist sem honum hafi tekist að lengja líf sitt um nokkur ár. Svo mikill kraftur er í karlinum. Hann er enn í fullu fjöri. Í stað þess að setjast í helgan stein að loknu skyldustarfi við Stanford háskóla stofnaði Engelbart félagasamtökin Bootstrap Institute (
www.bootstrap.org), sem einbeita sér að því að nýta gervigreind til góða fyrir samfélagið. Samtökin eru enn starfandi og stendur Douglas Engelbart vaktina launalaust fyrir þau í tólf klukkustundir á dag.

Share
















Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is