leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október | Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið


GAGNAGRUNNUR

22/09/2008 | 11:00

Íslenskir tölvunarfræðinemar verðlaunaðir á alþjóðlegri ráðstefnu

Tveir íslenskir tölvunarfræðinemar við Háskólann í Reykjavík hlutu tvenn verðlaun fyrir lokaverkefni sín á nýafstaðinni alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var í Tókíó í Japan.

Verðlaunin hlutu þeir Bjarni Þór Árnason og Ægir Þorsteinsson á fræðasviði sýndarmenna (Intelligent Virtual Agents).

Verkefnið, sem kallast „CADIA BML Realizer“, er unnið í samvinnu við Suður-Kaliforníuháskóla, og er opið safn verkfæra til að myndgera og kvika sýndarmenni í þrívíðum sýndarheimum.

Bjarni Þór Árnason tekur við verðlaunum þeirra félaga.

Þetta er fyrsta aðgengilega kvikunarvélin sem tekur við hreyfilýsingu á BML formi ("Behavior Markup Language"), sem er nýr alþjóðlegur staðall til að lýsa nákvæmri samhæfingu líkamshreyfinga.

Verkefnið var sent í sérstaka keppni nemendaverkefna í tengslum við ráðstefnuna og deildi fyrstu verðlaunum dómnefndar með einu öðru verkefni, en fékk að auki sérstkök áheyrendaverðlaun í almennri kosningu.

Í umsögn um verkefnið sagði dómnefnd að með framlagi sínu stuðluðu Bjarni og Ægir meðal annars að bættri samvinnu alþjóðlegra rannsóknarhópa á sviði sýndarmenna þar sem lítið hefur verið um stöðluð og aðgengileg verkfæri fram að þessu.

BSc-lokaverkefni Bjarna Þórs og Ægis var unnið hjá Gervigreindarsetri Háskólans í Reykjavík sl. vor undir leiðsögn Hannesar Högna Vilhjálmssonar, lektors við tölvunarfræðideild HR.

Þess má geta að á þessari ráðstefnu fluttu að auki tveir meistaranemar Gervigreindarsetursins fræðierindi, og var grein annars þeirra, Guðnýjar Rögnu Jónsdóttur, tilnefnd til verðlauna sem besta fræðigrein nemanda.

 

Share





13. október | Ericsson nýtir vindorku












 
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


 
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is