
GAGNAGRUNNUR
Hugbúnaðarfyrirtækið Adobe hefur svipt hulunni af næstu kynslóð rit- og myndvinnsluforrita sinna, Creative Suite 4. Hægt er að kaupa sérstakan Master Collection CS4 pakka þar sem nærri öll nýjustu forrit Adobe fylgja með.
Forstjóri Adobe, Shantanu Narayen, sagði í viðtali við Techworld Australia að hönnuðir CS4 séu að móta upplýsingaflæði samtímans, hvernig fólk skiptist á hugmyndum, kemur vörum sínum á framfæri og skráir eftirminnilega atburði.
„Hvort sem þú ert að búa til ný forrit fyrir veraldarvefinn, myndband eða tímarit sem slær í gegn, býður Creative Suite 4 frá Adobe upp á mikilvæga tækni sem tengir mismunandi fjölmiðla,“ sagði Narayen.
Hægt er að velja á milli sex pakka með hönnunarforritum eða keypt endurbættar útgáfur af hverju forriti fyrir sig, t.d. Photoshop, InDesign, Illustrator, Flash Professional, After Effects og Adobe Premiere Pro.
CS4 auðveldar hönnuðum að nota þessi forrit saman, en nýju hönnunarpakkarnir er væntanlegir á markað í næsta mánuði. Hægt er að hala niður beta prufuútgáfu af Flash Player 10 frá Adobe Labs hér.
Myndin af CS4 Master Collection er frá Adobe.