
GAGNAGRUNNUR
Sænski farsímaframleiðandinn Ericsson nýtir nú vindorku til að knýja aðal útvarpsbylgjustöðina sína að hluta til. Þetta framtak er liður í takmarki Ericsson um að verða umhverfisvænni.
Mað því að nýta vindorku hyggst Ericsson einnig stækka farsímanetkerfi sín þannig að þau nái einnig til svæða þar sem rafmagn er af skornum skammti. Frá þessu er sagt í frétt á vef IDGNS.
Útvarpsbylgjustöð Ericsson er kölluð Tower Tube og er ,eins og nafnið gefur til kynna, hár, pípulaga turn. Með þessari hönnun þarf stöðin hvorki skammtara- né kælingakerfi og notar hún því 40 prósent minni orku en hefðbundnar útvarpsbylgjustöðvar.
Vindorkuútgáfan af þessari stöð er í þróun hjá vísindamönnum Ericsson í samstarfi við Vertical Wind orkufyrirtækið og Uppsala háskólann í Svíþjóð. Hún felur í sér að hverfill með fjórum spöðum sé festur við efsta hluta turnsins.
Hverfillinn er útbúinn með rafhlöðum og þegar hann framleiðir meira rafmagn en þörf er á, hleðst orka inn á rafhlöðurnar og þannig er næg orka tryggð fyrir útvarpsbylgjustöðina, jafnvel í logni.
Verkefnið er enn í þróun.
Myndin er frá Ericsson.