leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október | Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið


GAGNAGRUNNUR

01/10/2008 | 11:02

Farsími notaður sem bíllykill

Nýi farsíminn frá Sharp hefur innbyggðan, rafrænan bíllykil fyrir Nissan bifreiðar. Sharp og Nissan vinna saman að verkefninu í samstarfi við japanska símafyrirtækið NTT DoCoMo og getur farsíminn opnað um 950.000 bíla frá Nissan af ýmsum gerðum.

Síminn hefur samskonar lyklabúnað og rafrænir Nissan lyklar. Bílstjóri getur til að mynda opnað eða læst bifreið sinni með þar til gerðum tökkum á farsímanum í allt að eins metra fjarlægð. Frá þessu er sagt í frétt á vef IDGNS.

Rafsegulsskynjari í bílnum greinir nálægð símans. Einnig er hægt að nota símann til að ræsa eða slökkva á vélinni þegar inn í bílinn er komið. Það er gert með aðeins einum takka. Auk þess opna sérstakir skynjarar skottið þegar haldið er á símanum í ákveðinni fjarlægð.

Nissan-Sharp síminn er byggður á hönnun SH906i frá Sharp og lítur hann alveg eins út ef frátaldir eru tveir takkar í hægra horni efst á símanum sem gefa innbyggða bíllykilinn til kynna. NTT DoCoMo veitir notendum farsímaþjónustu og ábyrgist að aftengja bíllykilinn ef síminn týnist.

Í Japan eru farsímar notaðir fyrir miklu meira en símtöl. Fyrir utan bíllyklatæknina er hægt að nota farsíma sem kort í neðanjarðarlestir eða jafnvel sem greiðslukort í verslunum.

Nissan og Sharp sýndu bíllyklatæknina með frumgerð af nýja farsímanum á Ceatec raftækjasýningunni sem sem er haldin í Japan um þessar mundir og stefna að því að fjöldaframleiða nýja farsímann á næsta ári.

Smellið hér til að lesa meira um sýninguna.

Myndin er frá Ceatec Organizing Committee.

Share





13. október | Ericsson nýtir vindorku












 
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


 
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is