
GAGNAGRUNNUR
Murata Boy, vélmennið hjólandi, hefur verið stjarna Ceatec sýningarinnar í Japan á undanförnum árum en nú hefur Seiko slegið honum við. Seiko getur nefnilega haldið jafnvægi á og hjólað á einhjóli.
Murata Manufacturing framleiðir bæði vélmennin og Seiko var hannaður til að sýna hæfni framleiðandans, eins og fram kemur í fréttaskeyti frá IDGNS.
Inni í líkama vélmennisins eru tveir snúðar (e. gyroscope). Annar kemur í veg fyrir að það falli á hliðina og hinn hjálpar því við að halda jafnvægi þegar það fer áfram og afturábak.
Murata Boy þurfti aðeins að hafa áhyggjur af því að detta ekki til hliðar og því sýnir Seiko fram á tvöfalda hæfni fyrirrennarans.
Seiko mun skemmta gestum Ceatec sýningarinnar með reglulegu millibili, sem hófst í Chiba í Japan í dag. Búist er við að um 200.000 gestir sæki sýninguna heim á þessu ári.
Myndina tók Martyn Williams fyrir IDGNS.