
GAGNAGRUNNUR
LG Electronics hefur tilkynnt að nýr Prada farsími verði settur á markað seinna á þessu ári sem hefur lyklaborð á vinstri væng símans. Að öðru leiti er nýi síminn líkur fyrirrennaranum, sem var settur á markað á svipuðum tíma í fyrra.
Prada sími LG hefur varkið mikla hrifningu meðal neytenda; nýlega seldist milljónasti farsíminn af þessari gerð. Frá þessu er sagt í fréttaskeyti frá IDGNS.
Nýi Prada síminn getur stært sig af öðru en lyklaborði. Hann halar niður gögnum á hraðanum 7,2 megabæt á sekúndu í gegnum HSDPA (high-speed downlink packet access) netkerfið, hefur fullkominn netvafra og fimm megapixla myndavél.
LG ætlar fyrst að setja símann á markað í Ítalíu, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Spáni og Hollandi. Hann mun kosta um 600 evrur, eða um 90.000 íslenskar kr.
Myndin er frá LG Electronics.