
GAGNAGRUNNUR
Forstjóri Microsoft, Steve Ballmer, sagði í síðustu viku í kvöldverði í Churchill klúbbnum í Silicon Valley, Bandaríkjunum, að Microsoft væri sennilega eina fyrirtækið sem gæti veitt Google almennilega samkeppni á sviði leitarvefja.
Ballmer í Churchill klúbbnum. Myndina tók James Niccolai fyrir IDGNS.
„Við þurfum að endurhanna leitarvefina alveg upp á nýtt,“ sagði Ballmer. „Það er ekki hægt að brjótast inn á markað með valdi. Það er aðeins hægt að ná góðum árangri með því að skilgreina vöruflokkinn upp á nýtt fyrir neytandann.“
Ballmer viðurkenndi að það myndi taka nokkurn tíma. „Þetta er fimm ára verkefni“. Microsoft mun leggja mikinn pening í þetta verkefni og fyrirtækið er staðráðið í að bæta stöðu sína á leitarvélamarkaðinum.