
GAGNAGRUNNUR
Namco Bandai hefur gefið út nýjan íþróttaleik fyrir Nintendo Wii leikjatölvuna, „We Ski & Snowboard“, sem er framhald af skíðaleiknum „We Ski“. Nú er einnig hægt að renna sér niður ímyndaðar brekkur á snjóbretti í sýndarheimi Wii.
Leikurinn mun vera hannaður bæði fyrir vana snjóbrettakappa og almenna leikmenn, eins og fram kemur í tilkynningu frá IDGNS fréttaþjónustunni.
Stikla fyrir nýja leikinn var frumsýnd á tölvuleikjasýningu í Tókýó í gær þar sem snjóbrettakappar sáust renna sér niður erfiðar brekkur sem tilheyra þekktum skíðasvæðum.
Á leiðinni upp lyftuna geta leikmenn notið útsýnisins og aðstæður leiksins breytast þegar degi hallar. Einnig geta snjóflóð komið leikmönnum að óvörum. Leikmenn geta átt samskipti við hvern annan á skíðasvæðinu.
„We Ski & Snowboard“ er væntanlegur á Japansmarkað í þessum mánuði, en ekki fyrr en í mars á næsta ári í Norður-Ameríku. Ekki er ljóst hvenær hann verður seldur í öðrum hlutum heimsins.
Myndin er frá Namco Bandai.