
GAGNAGRUNNUR
Leikjatölvufyrirtækið Nintendo hefur tilkynnt að ný lófa-leikjatölva, eða tölvuspil, verði sett á markað í Japan fyrir lok þessa árs og í öðrum löndum á næsta ári. DSi er ný útgáfa DS Lite tölvuspilsins, sem er orðið tveggja ára gamalt.
DSi er ekki ólíkt DS Lite í útliti, en þó þynnri vegna þess að það hefur ekki rauf fyrir GameBoy Advance hylki. Tækið hefur tvo skjái sem eru örlítið stærri en skjár fyrirrennarans, eða 3,25 tommur að stærð í stað þriggja. Frá þessu segir í fréttaskeyti frá IDGNS.
Nýja tölvuspilið hefur einnig tvær stafrænar myndavélar. Ytri myndavélin hefur þriggja megapixla upplausn og hægt er að geyma myndirnar á SD korti og færa þær síðan yfir á annað hvort hefðbundna tölvu eða Nintendo Wii leikjatölvu.
DSi fer á markað í Japan 1. nóvember og mun kosta 18.900 jen (um 19.500 kr.), sem er örlítið meira en DS Lite kostar.
Myndina tók Yuriko Nagano fyrir IDGNS.