
GAGNAGRUNNUR
Sanyo Electric hefur þróað nýjan, bláan leysigeislatvist (e. blue laser diode), sem samkvæmt fyrirtækinu tryggir framleiðslu betra og hraðara kerfis fyrir blágeisladiska (e. Blu-ray Discs). Sumir spá því að blágeisladiskar muni leysa hefðbundna geisla- og mynddiska af hólmi.
Sanyo leysigeislinn. Myndin er frá Sanyo Electric.
Með 450 milliwatta leysigeisla, er hægt að skrifa blágeisladiska með allt að fjórum lögum af gögnum mun hraðar en áður. Frá þessu er sagt í frétt á vef IDGNS.
Hvert lag á blágeisladiski getur geymt 25 gígabæt af gögnum. Diskur með fjórum lögum gæti því geymt um átta klukkutíma af hágæðamyndböndum og með hraðanum 12X væri hægt að skrifa myndefnið á diskinn á aðeins tíu mínútum.
Þótt tæknin sé tilbúin gæti það þó tekið nokkur ár áður en neytendur geta notið blágeisladiska sem framleiddir eru á þennan máta því þeir krefjast annars konar tölvudrifa en tölvur eru almennt útbúnar með í dag.