
GAGNAGRUNNUR
Sony hefur hannað nýja tegund af hátölurum sem hanga úr loftinu og hafa allt hljóðkerfi heimilisins í einum kassa. Prufueintak af þessum nýju hátölurum var kynnt á sýningu í Tókýó fyrr í þessum mánuði.
Hljóðkerfaverkfræðingur hjá Sony, Nobukazu Suzuki, útskýrði fyrir blaðamanni IDGNS fréttastofunnar að hljóðið komi úr langri glerpípu. Glerpípan er virkt með litlum titrurum.
Hljóðbylgjur ferðast upp í gegnum glerpípuna og er síðan dreift í 360-gráðu hring í kringum pípuna. Með þessari tækni heyrist hljóðið jafn vel frá öllum köntum.
Hangandi hátalarinn, sem kallast „Hibiki“, líkist tískulegu loftljósi og er hannað sem skrautmunur sem færi vel fyrir ofan stofuborð.
Myndina tók Martyn Williams fyrir IDGNS.