leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október | Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið


GAGNAGRUNNUR

24/09/2008 | 10:40

T-Mobile, Google og HTC kynna fyrsta Android símann

Fjarskiptafyrirtækin T-Mobile, Google og HTC kynntu fyrsta farsímann sem notast við Android stýrikerfi í New York í gær og sögðu frá því hvar hann fengist, hversu mikið hann kostaði, upp á hvaða möguleika stýrikerfið býður og undirstrikuðu að það væri með opnum kóða.

Farsíminn, sem nefnist G1, fer fyrst á markað í Bandaríkjunum 22. október næstkomandi og fljótlega eftir það fer hann á sölu í Bretlandi, en hann verður ekki fáanlegur í öðrum Evrpópulöndum fyrr en á fyrsta ársfjórðungi 2009. Frá þessu er sagt í frétt á vef IDGNS.

Áhugasamir geta keypt áskrift með takmarkaðan aðgang að gögnum fyrir 25 Bandaríkjadali (um 2.400 kr.) á mánuði eða með ótakmörkuðum aðgangi fyrir 35 dali á mánuði (um 3.300 kr.).

„Við trúum því að opinn [kóði] sé framtíð veraldarvefsins í farsímanum,“ sagði Cole Brodman, yfir tækni- og nýsköpunarstjóri T-Mobile í Bandaríkjunum. „Frá bílskúrum til framhaldsskóla, frá smábæjum til stórborga, við trúum því að þriðju aðilar munu keyra áfram nýsköpun og framtíð farsímavefsins í samvinnu við söluaðila og aðalframleiðendur.“

Með nýja G1 símanum er hægt að fletta í gegnum möguleika á skjánum með því að snerta hann hratt, sem er svipuð tækni og notast er við í iPhone farsímanum frá Apple. Ef notandi snertir skjáinn í lengri tíma, t.d. með því að halda fingrinum á ljósmynd í smá stund, opnast valmynd og þannig er t.d. hægt að senda myndina öðrum.

Síminn notast við vafra sem er svipaður og Safari frá Apple. Hann kallast „Chrome-light“, sem tilvísun í nýja Chrome vafrann frá Google.

G1 notast við margt annað sem notendur Google leitarvefsins þekkja, t.d. Google Maps korting og YouTube myndbandasíðuna. Þeir geta einnig keypt tónlist í MP3 skrám frá vefverslun á Amazon.

Síminn hefur auk þess sérstakan leitartakka. Ef smellt er á hann birtist leitarvél Google á skjánum. Notendur geta lesið Word, PDF og Excel skjöl í símanum, en ekki Microsoft Exchange tölvupósta.

Ekki er hægt að tengja G1 við hvaða netkerfi sem er, aðeins T-Mobile netkerfið.

Smellið hér til að lesa pistil um Android og hér til að lesa meira um Chrome frá Google. Smellið hér til að lesa síðustu frétt Tölvuheims um Android farsímastýrikerfið.

Share





13. október | Ericsson nýtir vindorku












 
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


 
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is