
GAGNAGRUNNUR
Toshiba mun bráðlega setja á markað fyrsta tækið sem gengur fyrir metanól eldsneyti. Samkvæmt Toshiba verður hægt að endurhlaða ferðatæki hraðar en áður, s.s. farsíma og fartölvur, með metanóli.
Þess konar tæki kallast DMFC, eða direct-methanol fuel-cell device upp á ensku.
Myndina af frumgerð DMFC farsíma Toshiba, sem sýnd var á Ceatec sýningunni, var tekin af Martyn Williams fyrir IDGNS.
Toshiba hefur ekki tilkynnt hvers konar tæki það mun setja á markað innan skamms, en blaðamönnum IDGNS fréttastofunnar þykir líklegt að það verði farsími þar sem fyrirtækið var með DMFC farsíma til sýnis á Ceatec sýningunni í Japan í síðustu viku.
Áætlar er að nýja metanól tækið fari á markað fyrir lok mars á næsta ári.
DMFC tæki framleiða rafmagn þegar metanól kemst í snertingu við vatn og loft. Eina aukaafurðin er takmarkað magn af vantsgufum og koltvísýringi, og eru þess konar tæki því sögð „grænni“ en raftæki sem nota hefðbundnar rafhlöður. Auðvelt og fljótlegt er að skipta um metanól hylki.
Toshiba, sem og aðal samkeppnisaðilar fyrirtækisins, þ.m.t. Sharp, NEC, Hitachi, Sanyo, Fujitsu og Canon, hafa kynnt frumgerðir af metanól tækjum á undanförnum árum, en slík tæki hafa ekki verið markaðssett fyrir almenna neytendur fyrr en nú.