
GAGNAGRUNNUR
Google er að þróa nýja tækni á Google Maps kortaþjónustunni. Nú hefur myndböndum frá YouTube verið bætt inn á kortin, á sama hátt og hefur verið gert við ljósmyndir, og þá verður hægt að skoða myndbönd tengd hverjum stað fyrir sig.
Hægt var að skoða þessa nýju þjónustu Google Maps í Japan í gær, en aðeins um stundarkorn og hugsanlega fyrir mistök. Frá þessu er sagt í frétt á vef IDGNS.
Þegar notendur kortaþjónustunnar renndu músinni yfir „More“ hnapp á korti af Japan birtust myndbönd sem hægt var að horfa á í viðbót við upplýsingar frá Wikipedia alfræðiorðabókinni og ljósmyndir.
Þegar smellt var á myndbandið voru notendur færðir fyrir á YouTube myndbandasíðuna. Google hefur ekki viljað ræða þessa tækninýjungu ennþá.
Myndin er frá Martyn Williams hjá IDGNS.