leita

Linux er best! – Nei það er bara fyrir tölvunerði það borgar sig að nota Windows! Svona rifrildi er hægt að lesa á ótalmörgum spjallsíðum þar sem tölvunotendur mæra kosti síns kerfis eða bölsóttast yfir göllum hins. Það er í raun ekki hægt að taka afstöðu fyrr en maður


Ghost Recon leikirnir hafa alltaf átt sinn aðdáendahóp, spilarar sem að hafa viljað raunveruleikann beint í æð, skotleik þar sem eitt skot frá óvininum þýðir bara eitt, snöggann endi. Ghost Recon inniheldur hasar og spennu enn aldrei af heilalausu sortinni, hér er allt útreiknað og skipulagt í þaula. Þessi



Half life 2: Episode 2: Geðveiki og sprengjuskjálfti


Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og eftirminnilegum persónum.
Sagan snýst um að loka ormagöngum sem að geimverur nota til árása á jörðina. Söguþráðurinn er ágætur en framsetningin frábær. Karakterarnir í leiknum myndu sóma sér vel í hvaða spennumynd sem er. Það er semsagt mikil áhersla á söguþráð og persónusköpun í Half life 2: Episode 2 þó án þess að fórna öðrum þáttum í leiknum eins og grafík eða hljóðvinnslu.

Grafíkin í Half life 2: Episode 2 er meiriháttar flott, allt umhverfið er vel teiknað og karakterar, vopn og verjur vel hannaðar. Það sem er þó flottast er hversu ljúflega leikurinn spilast, hvergi er hökt eða galla að finna og jafnvel í lokabardaganum þar sem ægir saman allskyns vígtólum, hermönnum og farartækjum er hvergi snöggann blett að finna.
Hljóðið er mjög vel gert, tónlistin er í kvykmyndastíl, rís og fellur með gangi leiksins. Vopnin hljóma mjög vel og inniheldur Half life 2: Episode 2 flottasta hljóðeffekt á vélbyssu sem að undirritaður hefur heyrt. Raddsetningin er vel leikin og útfærð.

Eins og áður segir spilast Half life 2: Episode 2 ótrúlega vel, þetta gerir leikinn mun skemmtilegri en ella enda fátt eins leiðigjarnt og frábær grafík í hægagangi.
Vopnin eru stórskemmtileg og í Half life 2: Episode 2 er mikil áhersla lögð á notkun þyngdarleysis byssunnar. Þetta er eitt frumlegasta vopn sem að fundið hefur verið upp í tölvuleikjum og býður uppá ótrúlega fjölbreytta notkun. Til dæmis er lokabardaginn háður með þessu vopni í aðalhlutverki.
Half life 2: Episode 2 endar svo á þann máta að næsti leikur verður keyptur um leið og hann berst. Þetta minnir mann svolítið á egþa fyrsta serían í Lost þáttunum endaði, maður brennur í skinninu eftir framhaldinu.
Það er auðvelt að mæla með Half life 2: Episode 2 fyrir alla aðdáendur skemmtilegra tölvuleikja, pottþétt skemmtun.

Grafík 4.5
Frábær grafík að öllu leyti, vel teiknað og hannað – hvergi snöggann blett að finna hér.

Hljóð 4.5
Frábær raddsetning, flott tónlist og effektar vel gerðir. Besta vélbyssu gjamm í sögu tölvuleikja.

Tækni 4.5
Allt rennur ljúflega áfram, hvergi hökt eða pásur í þrívíddarvélinni. gátur og þrautir eru vel gerðar og rökréttar.

Leikhæfni og ending 4.5
Skemmtilegur, frumlegur og vel gerður, enginn Netspilun. Get ekki beðið eftir framhaldinu. 

Share

































































































































Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


Fyrsta tilraun til tölvuvæðingar heimilanna var óneitanlega eldhústölvan svokallaða, sem átti að létta húsmæðrum í Bandaríkjunum heimilisstörfin. Tölvan, sem hét í daglegu tali Honeywell Kitchen Computer, varð hins vegar aldrei sá aðstoðarkokkur sem framleiðslufyrirtæki hennar, Neiman-Marcus, bjóst við að hún yrði. Óvíst er hvort ahægt sé





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is