
Vefmiðlun er fyrirtæki sem fáir hafa heyrt um en það rekur nokkra af stærri vefjum landsins. Meðal vefja sem fyrirtækið á og rekur eru tenglavefurinn B2.is, vefleikjasafnið Leikjanet.is og barna- og fjölskylduvefurinn Barnanet.is. Friðbjörn Orri Ketilsson hjá Vefmiðlun ehf. segir aðsókn og velgengni vefja fyrirtækisins framar vonum og ljóst að fyrirtækinu hafi tekist að svara brýnni þörf meðal netnotenda hér á landi.
Tenglavefurinn B2 hefur verið starfræktur allt frá árinu 2001 þegar fyrstu tenglarnir litu dagsins ljós. Vefurinn gekk þá undir nafninu Batman.is en síðar var skipt um nafn að beiðni DC Comics, eiganda vörumerkisins Batman. Vefurinn hefur síðan birt 30-60 tengla daglega í 5 ár.
Barnanet, B2 og Leikjanet
Leikjanet.is er nýlegur vefur en hann var opnaður í apríl á þessu ári og byggir á svipaðri hugmynd og B2 en daglega bætast nýir leikir í safnið. Spurður hvað varð þess valdandi að ákveðið var að opna Leikjanet.is segir Friðbjörn Orri Ketilsson að greinileg þörf hafi verið á slíkum vef hér á landi. „Stór hópur fólks, sem sótti leiki sína til útlanda og flakkaði um vefi í leit að leikjum, var ekki að fá slíka þjónustu hérlendis. Það vantaði miðpunkt fyrir þennan hóp og Leikjanetið varð sá miðpunktur ef marka má aðsóknartölur.“
Nýjasta verkefni fyrirtækisins er svo fjölskyldu- og barnavefurinn Barnanet.is sem settur var af stað fyrir aðeins nokkrum vikum en þar geta foreldrar m.a. sett upp vefsíðu með myndasafni fyrir barnið sitt án sérstakrar tækniþekkingar.
Viðtökur frábærar
Friðbjörn segir að viðtökur íslenskra netnotenda séu framar öllum vonum. „Vefirnir okkar hafa allir orðið til í samkeppni við aðra svipaða vefi. Uppgangur Batman.is, nú B2, var rólegur en stöðugur og hefur aukist jafnt og þétt frá fyrsta degi. Met var sett í aðsókn fyrir nokkrum mánuðum þegar 116.000 einstakir gestir sóttu vefinn á 30 daga tímabili og er óhætt að segja að B2 hafi náð tvöfaldri þeirri umferð sem stærsti keppinautur okkar hafði þegar við fórum af stað.“
Hann segir að nú þegar sæki fjöldi fólks Leikjanet.is til að prófa fleiri hundruð leiki af ýmsum toga. Að sögn er Leikjanet.is ætlað að gera vefleiki aðgengilegri en áður. Daglega bætast leikir í safnið og hverjum leik fylgir skjámynd og stutt lýsing. „Þvert á okkar spár fór aðsóknin mjög hratt vaxandi fyrsta mánuðinn og náði snemma á öðrum mánuði því marki sem við ætluðum að ná að loknu fyrsta starfsári vefsins. Við erum því hæstánægðir með viðtökurnar.“ Friðbjörn segir að svipaða sögu sé að segja um Barnanet.is sem opnaður var á dögunum en það er að sögn stærsta verkefni félagsins til þessa og verður miklu varið í að þjónusta og þróa þann vef áfram á næstu misserum.
Stofnuðu fyrirtækið í Verzlunarskólanum
Vefmiðlun er eigu Friðbjörns og Arthúrs Ólafssonar en það sérhæfir sig í ýmiss konar netverkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir. „Við stofnuðum fyrirtækið á meðan við vorum í námi við Verzlunarskóla Íslands með það að markmiði að kosta okkur í gegnum háskólanám. Við erum báðir í námi við Háskóla Íslands í hagfræði og hugbúnaðarverkfræði. Við höfum lagt aðaláherslu á að smíða vefi fyrir neytendur sem svo eru í rekstri hjá fyrirtækinu.“
Friðbjörn segir að enn sem komið er hafi sá rekstur gengið mjög vel. „Á bak við hvern vef hjá okkur eru nokkrir stjórnendur sem sjá um allan daglegan rekstur. Langflestir eru á bak við B2, en stjórnendur hans eru samtals 32 og deila með sér álaginu. Allir geta þeir unnið þessi störf hvort sem þeir eru staddir í skóla, heima hjá sér eða á skrifstofu Vefmiðlunar í Skipholti. Öll okkar verkefni eru bundin við Netið en ekki við stað eða tíma. Það gefur okkur mikið forskot á önnur fyrirtæki sem við eigum í samkeppni við.“
Hugmyndir hafa náð að blómstra
Friðbjörn segir að Vefmiðlun leggi áherslu á smíði lausna sem séu sérstaklega sniðnar að þörfum notenda. „Við viljum forðast þá leið að framleiða hugmyndir á færibandi og rjúka svo með þær til fjárfesta í von um skjótan gróða. Það sem gerir okkur frábrugðna öðrum netfyrirtækjum hérlendis er að við höfum aldrei skuldað krónu. Við fáum hugmyndir, vinnum þær og þróum, klárum endanlega þróun í samvinnu við notendur og einbeitum okkur svo að rekstri og stuðningi við þau kerfi. Við setjum af stað verkefni sem ætlast er til að skili tekjum en þær verða að vera umfram gjöld til að verkefninu sé haldið áfram. Þannig hafa allar okkar hugmyndir orðið að veruleika og náð að blómstra,“ segir Friðbjörn sem kveðst bjartsýnn á árangursríkan rekstur Vefmiðlunar um ókomin ár.
---
Fyrirtæki: Vefmiðlun ehf.
Vefir: www.vefmidlun.is, www.b2.is og www.barnanet.is
Stofnár: 1999
Fastir starfsmenn: 2
Netfang: vefmidlun@vefmidlun.is
Heimilisfang: Skipholt 50c