leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



23/08/2007 | 00:00

Bioshock: Alvöru söguþráður

Það er ekki oft sem að fyrstu persónu skotleikir heilla mann með söguþræðinum. Yfirleitt er söguþráðurinn í þessari tegund leikja mjög einfaldur eða varla til staðar. Það er því gaman þegar að leikur eins og Bioshock kemur út, þar sem söguþráðurinn gæti verið gefinn út í bók, spennandi bók.
Bioshock snýst um Mikilmennsku brjálæðingin Andrew Ryan, sem hefur frumlegar hugmyndir að þjóðfélagi sem að falla ekki í kramið hjá yfirvöldum. Andrew þessi byggir því borgina Rapture neðansjávar, þar sem hann framfylgir hugmyndum sínum í félagskap líkt þenkjandi manna. Hugsjónir Andrews eru mjög einstaklings miðaðar og kapítalískar og fer útópían forgörðum á stuttum tíma. Eftir situr borgin sem einskonar helvíti á jörðu. Söguhetja leiksins lendir í flugslysi og hrapar rétt hjá yfirborðs aðgangi Rapture borgar. Söguhetjan áttar sig fljótt á að Rapture borg er ekki eins mikil blessun og hann hefði haldið. Söguþráðurinn fléttast svo áfram þar sem spilarinn fær að komast að myrkum leyndarmálum Rapture borgar, ansi spennandi og best að stoppa hér til að spilla ekki fyrir leikreynslunni.

Grafíkin í Bioshock er mjög flott, tæknilega er hún vel gerð en það sem lyftir henni á hærra plan er hönnunin. Allt er ótrúlega vel hannað og samkvæmt sjálfu sér. Rapture borgin lítur út eins og blanda af heimi úr Jules Verne bókum og kvikmyndinni Blade Runner. Hljómar skringilega en virkar þræl vel. Karakterarnir eru rosalega flottir, hvort sem um er að ræða mennska óvini eða vélmenni. Í einu orði sagt frábært.
Hljóðið er allveg jafn vel gert og grafíkin, raddsetningin stendur upp úr, fjölbreytt, vel gerð og leikin. Effektar og umhverfishljóð eru í hæðsta gæðaflokki.

Það væri ekkert gaman af leiknum ef að óvinirnir væru hálfvitar, sem betur fer er gervigreind óvinanna mjög vel gerð. Þeir stökkva í skjól, læra inn á ný vopn sem spilarinn fær í hendurnar og gera árásir á vitrænann hátt.
Vopnin í Bioshock eru mjög vel gerð. Hér eru hefðbundnar byssur og vopn en það sem gerir þetta allt betra eru lífrænir eiginleikar sem að spilarinn getur fundið og notað. Þeir gera það t.d að verkum að spilarinn getur gefið óvinunum raflost, kveikt í þeim og hent til og frá. Virkilega vel útfærður möguleiki sem að gefur leiknum meiri dýpt.
Bioshock kemur út fyrir PC og Xbox 360 og það er einfalt mál að mæla með leiknum fyrir þá sem að eiga slík farartæki. Frábær leikur.

Grafík 4.5
Stílhrein, vel hönnuð og tæknilega nánast fullkomin.

Hljóð 4.5
Raddsetningin er ótrúlega vel gerð, effektar og umhverfishljóð skotheld.

Tækni 4.5
Kostir: Gervigreind óvinanna, lífrænu vopnin og vel gerð þrívíddarvél. Gallar: Engir.

Leikhæfni og ending 5.0
Frábær leikur, meðallangur og vel hægt að spila hann í gegn oftar en einu sinni.

Fyrir: PC og Xbox 360

Snorri Gunnarsson

Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is