leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



08/11/2007 | 00:00

Call of Duty 4: Modern Warfare: Farið fram í tímann



Call of Duty leikirnir hafa til þessa alltaf verið sviðsettir í kringum seinni heimstyrjöldina. Í Call of Duty 4: Modern Warfare tækla skaparar leiksins nútímann og er óhætt að segja að þeir geri það með stæl. Call of Duty 4: Modern Warfare gefur leikjum eins og Ghost Recon og Rainbow Six ekkert eftir, skilur þá eftir í rykinu ef eitthvað er. Call of Duty 4: Modern Warfare er nýji standardinn í her skotleikjum.
Það eru alltaf einhverjir gallar og Call of Duty 4: Modern Warfare hefur upp á að bjóða 2 galla. Þetta eru smávægilegir hlutir eins og það að ekki er hægt að spila leikinn í samvinnu við vini sína, eitthvað sem verður án efa lagað í uppfærslu. Hinn gallinn er hversu auðvelt það er að skjóta samherja sína, pirringur á stundum, svosem hægt að kalla þetta raunverulegt en pirrandi engu að síður.


Grafíkin í Call of Duty 4: Modern Warfare er hreint út sagt stórkostleg, hér á ferð er algerlega næstu kynslóðar leikur. Nákvæmnin er í fyrirrúmi og hefur tekist vel til með karaktera og vopn. Umhverfið er einnig mjög flott, það besta er þó hversu allt er vel smurt, allt rennur ljúft áfram þrátt fyrir fjöldan allan af hermönnum á vígvellinum og sprengingar og flugumferð á fullum dampi. Þetta gerir leikinn mjög áhrifaríkan fyrir spilarann og um leið hina bestu skemmtun.Hljóðið fylgir grafíkinni eins og skugginn, sprengingar og vopnaglamur hljóma raunverulega og öll vopnin hljóma kraftmikil. Það er gífurlega mikilvægt enda ekkert verra en vélbyssa sem að hljómar eins og loftbyssa.


Gervigreindin í Call of Duty 4: Modern Warfare er mjög vel útfærð, samherjar manns vinna sitt verk án fumls og fuðurs og stundum bjarga þeir lífi manns. Óvinirnir eru líka skarpir, fela sig, henda handsprengjum og gera fyrirsát. þetta setur leikhæfnina í hæsta gæðaflokk. Call of Duty 4: Modern Warfare er heldur stuttur í einmenningsspilun en það bætir mikið að hægt er að spila hann aftur í svokölluðu Arcade Mode. Þar fær spilarinn stig fyrir hvert dráp og ákveðið mörg líf til að lifa leikinn af. Net spilunin er svo fáránlega vel heppnuð, nóg af kortum til að spila og virkar netþjónustan í leiknum mjög vel. Ef að fólk fær sér skotleik fyrir þessi jól þá er Call of Duty 4: Modern Warfare algerlega þess virði að spandera krónunum sínum á.

Grafík 5.0
Frábær grafík setur nýjann standard í fyrstu persónu skotleikjum.

Hljóð 5.0
Allt virkar fullkomlega, tónlist, byssugelt, sprengingar og umhverfishljóð.

Tækni 4.5
Rennur mjög ljúflega þrátt fyrir hversu mikið er að gerast á vígvellinum. Mætti slaka aðeins á möguleikanum að skjóta samherja sína.

Leikhæfni og ending 4.5
Svolítið stuttur en Arcade Mode og Netspilunin reddar því.

Fyrir: PC, Xbox 360 og PlayStation 3

Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is